Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

BJÖRN ÓSKAR Á LOKAÚRTÖKUMÓT NORDIC LEAGUE

11.10.2016
BJÖRN ÓSKAR Á LOKAÚRTÖKUMÓT NORDIC LEAGUE

Björn Óskar Guðjónsson og Theodór Emil Karlsson léku á úrtökumóti fyrir Nordic golf league sem fram fór í Danmörku. 1. stigi úrtökumótsins lauk í dag en alls komust 22 kylfingar áfram af 76. Björn Óskar tryggði sér glæsilega áfram með fugli á 18. braut vallarins. Björn hafnaði í 14. sæti á alls 2 höggum yfir pari.

Theodór Emil lék hringina tvo á 11 höggum yfir pari og hafnaði í 53. sæti.

Við óskum Birni til hamingju með áfangann og góðs gengis á lokastigi mótsins sem hefst á fimmtudag.