Uppskeruhátíð GM verður haldin hátíðleg laugardagskvöldið 24. september næstkomandi. Mikið verður um dýrðir þetta kvöld en að þessu sinni fer hátíðin fram í Harðarbóli, félagsheimili hestamanna í Mosfellsbæ. Á hátíðinni verða veitt verðlaun fyrir VÍKINGdeildina, Titleist holukeppnina og 66° listann ásamt fleiri verðlaunum. Framfarabikarinn verður afhentur en sá félagsmaður sem hefur náð hlutfallslega mestri forgjafarlækkun í sumar hlýtur bikarinn. Kylfingar ársins í karla og kvennaflokki eru einnig heiðraðir.
En það eru einnig veitt fleiri verðlaun og geta félagsmenn nú komið tilnefningum á framfæri á golfmos@golfmos.is
Félagsmaður ársins
Á hverju ári heiðrum við í GM einn félagsmann sem hefur komið að félagsstarfinu og starfsemi klúbbsins á öflugan hátt og gefið mikið af sér í þágu klúbbsins. Framlag viðkomandi getur verið á ýmsan máta og er engin undanskilin þegar kemur að því að velja, aldur og fyrri störf skipta ekki máli í því sambandi.
Högg ársins
Er eitthvað högg sem var hreint út sagt ótrúlegt? Hvort sem höggið er gott eða slæmt þá viljum við fá tilnefningar og söguna á bakvið höggin sem vert er að segja frá aftur og aftur.
Afrek ársins
Þegar kemur til þess að verðlauna fyrir afrek ársins er ekkert undanskilið. Hvort sem um er að ræða eljusemi við golfiðkun, glæstan sigur eða þrautsegju á raunastund í erfiðum hring þá kemur einfaldlega allt til greina. Hvað fannst þér merkilegasta afrekið á liðnu golftímabili?
Félagsmenn eru hvattir til að koma tilnefningum á framfæri á golfmos@golfmos.is sem fyrst. Ekki hika við að láta okkur vita af því sem þér finnst koma til greina þegar kemur að því að velja það markverðasta frá liðnu sumri. Mögulega verða einhver fleiri skemmileg verðlaun veitt á lokahófinu en ljóst að þar verður glatt á hjalla.