Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

KRISTÓFER Í 2. SÆTI Í ÞÝSKALANDI

24.10.2016
KRISTÓFER Í 2. SÆTI Í ÞÝSKALANDI

Kristófer Karl Karlsson og Ragnar Már Ríkarðsson luku á laugardag keppni í Junior Golf Tour Chamiponship mótinu. Kristófer Karl lék frábært golf og með glæsilegri spilamennsku síðustu 2 keppnisdagana endaði hann jafn í 1. sæti. Leikinn var bráðabani um sigurinn í mótinu en þar þurfti Kristófer að játa sig sigraðan á 2. braut. Glæsilegur árangur hjá Kristófer og óskum við honum innilega til hamingju með árangurinn.

Ragnar Már endaði jafn í 14. sæti í flokki 16 - 18 ára en Ragnar Már er þar á yngsta ári. Ragnar átti flottan lokahring en hann lék á 74 höggum.

Flottur árangur hjá okkar mönnum.