Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

STAÐAN EFTIR ANNAÐ LIÐAPÚTTMÓTIÐ

04.02.2017
STAÐAN EFTIR ANNAÐ LIÐAPÚTTMÓTIÐ

Nú er önnur umferð í Liðapúttmótaröðinni búin og myndaðist mikil og skemmtileg stemning í skemmunni. Alls mættu 13 lið til leiks og mikið af góðum skorum prýddu skorkortin í þetta skipti. Greinilegt er að ákveðin lið munu etja miklu kappi á komandi vikum til þess að hreppa Liðapúttmótatitilinn.

Svona standa svo leikar eftir tvær umerðir:

1. Múmínálfarnir ( Stefán, Krisján og Pétur ) - 209 högg

2. Skytturnar þrjár ( Elís, Aron, Björn ) - 213 högg

3. Fjórir fræknu ( Bragi, Gunnar, Páll, Bjarnþór ) - 218 högg

4. Fálkarnir ( Ásbjörn, Kjartan, Karl, Hákon ) - 226 högg

5. Champions ( Kristófer, Sverrir, Jón ) - 229 högg

6. SAMvizkan ( Gunnar, Einar, Eyjólfur ) -230 högg

7. EHH ( Haukur, Eggert, Haraldur, Hanna ) - 236 högg

8. Púkarnir ( Halldór, Ingvar, Erlingur ) - 239 högg

9. Kríurnar ( Margrét, Guðný, Camilla, Auður ) - 246 högg

10. Litróf ( Davíð, Gunnlaugur, Egill ) - 247 högg

11. Ingurnar þrjár ( Ingibjörg, Inga, Ingveldur, Þórður ) - 248 högg

12. Ásarnir ( Ásgrímur, Helgi, Sigurður ) - 260 högg

13. Eddelnig ( Edda, Elín, Ingibjörg ) - 124 högg ( ein umferð spiluð )

14. Sameinar ( Einar B, Einar G, Kári ) - 126 högg ( ein umferð spiluð )

Vert er samt að minna á það að aðeins munu 4 bestu mótin gilda fyrir hvert lið svo að staðan gæti breyst ansi mikið á næstu mótum.