Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

LOKAVIKA NÝLIÐAÆFINGA - REGLUKVÖLD

11.07.2016
LOKAVIKA NÝLIÐAÆFINGA - REGLUKVÖLD

Nú fara nýliðaæfingarnar senn að líða undir lok þetta sumarið. Þessi vika er sú síðasta og verður Sigurður Geirsson alþjóðadómari með æfingarnar. Sigurður mun vera með fróðlegan fyrirlestur um helstu golfreglur sem hafa þarf í huga.

Hvetjum sem flesta nýliða til þess að mæta og kynna sér reglurnar nánar.

Æfingarnar eru á milli klukkan 20 og 21 í kvöld mánudag (Hlíðavöllur) á sama tíma í Bakkakoti á miðvikudaginn.