Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

VETRARMÓTARÖÐIN HEFST Á LAUGARDAG

12.10.2016
VETRARMÓTARÖÐIN HEFST Á LAUGARDAG

Fyrsta Vetrarmót ársins fer fram laugardaginn næstkomandi 15. október. Ræst verður út af öllum teigum klukkan 10:00 og opnar húsið klukkan 9:00. Skráning í mótið er því einungis skráning í ráshópa.

Mótsgjald er 1.000 kr fyrir félagsmenn í GM. Kylfingar utan GM geta tekið þátt í fyrstu tveimur vetrarmótum ársins. Að þeim loknum er Vetrarmótaröðin eingöngu fyrir félagsmenn í GM. Verð fyrir utanfélagsmenn er 3.900 kr.

Keppt er í punktakeppni með forgjöf og höggleik án forgjafar.

Skráning í mótið er á golf.is.