VALLASVÆÐI OG AÐSTAÐA

Golfklúbbur Mosfellsbæjar hefur yfir að ráða tveimur ólíkum en yndislegum vallasvæðum. Það er ekki ofsögum sagt að okkur þyki vænt um vallasvæðin okkar. Hvort svæði hefur sína sérstöðu sem skila sér í einstakri upplifun kylfinga sem leika vellina.

Á báðum svæðum er að finna aðstöðu til æfinga. Æfingasvæði með púttflöt og glompu í Bakkakoti en á Hlíðavelli er æfingasvæði þar sem er aðstaða fyrir allar æfingar. Þar er nú hægt að slá af grasi ásamt góðum pútt- og vippflötum og glompu. Veitingasölu og skála er að finna á báðum vallasvæðum og eru seldar veitingar þar meðan á golfleik stendur.

Það er mikill kostur að vera í golfklúbb sem býður upp á tvö vallasvæði, með því er reynt að tryggja að annað vallasvæðið sé alltaf opið þannig að félagsmenn eigi alltaf kost á því að komast í golf.

Hlíðavöllur

Hlíðavöllur er staðsettur við Leirvog í Mosfellsbæ og er 18 holu keppnisvöllur. Völlurinn liggur við ströndina og er óviðjafnanlegt útsýni bæði til sjávar og fjalla. Hlíðavöllur er 5.445 metrar á gulum teigum og 4.678 metrar á rauðum.

Völlurinn er fjölbreyttur og skemmtilegur með mörgum áskorunum. Eldri hluti Hlíðavallar er tiltölulega stuttur og eru flatir þar oft á tíðum aðeins upphækkaðar. Á nýrri hluta vallarins eru brautirnar talsvert lengri og flatir almennt mjög stórar.

Vallarmet Hlíðavallar

Hvítir - Kristófer Karl Karlsson 62 högg (8. júlí 2022)

Gulir - Kristján Þór Einarsson 63 högg (23. ágúst 2012)

Bláir - Ragnhildur Kristinsdóttir 67 högg (4. maí 2021)

Rauðir - Eva Kristinsdóttir 67 högg (27. júní 2023)


Vallarmet Bakkakots

Gulir - Kristján Þór Einarsson 59 högg (13. júní 2017)

Rauðir - Eva Kristinsdóttir 67 högg (22. maí 2023)

Bakkakot

Bakkakot er 9 holu völlur staðsettur í Mosfellsdal. Einkenni Bakkakots má segja að séu stuttar brautir og trjágróður en í gegnum árin hefur mikið verið gróðursett á svæðinu og er staðurinn sannkölluð sveitasæla stutt frá ys og þys borgarinnar.

9 holur í Bakkakoti eru 2.051 metrar af gulum teigum eða 4.102 metrar á 18 holum. Það er þó ekki svo endilega auðvelt að skora völlinn vel þó hann sé stuttur. Beita þarf mismunandi höggum og skipta staðsetningar miklu máli til að ná góðu skori. Flatir á vellinum teljast vera í minni kantinum og því þarf nákvæm högg til að koma sér í fuglafæri.

Æfingasvæði

Á Hlíðavelli er að finna æfingasvæði og eru boltar seldir þar. Slegið er af mottum en einnig er þar stór grasteigur, þegar grasteigurinn er í notkun er það auglýst sérstaklega.

Æfingasvæðið á Hlíðavelli er opið alla daga vikunnar frá kl. 08:00 til 22:00. Síðustu boltar eru seldir í boltavélinni kl. 21:30.


Tvær púttflatir eru sitthvorum megin við Íþróttamiðstöðina Klett, pútt-, vipp- og glompuflatir eru við æfingasvæðið og vipp-, pitch- og glompuflöt er við vélaskemmu Hlíðavallar.

Veitingasölur og aðstaða

Félagsmenn og gestir geta keypt veitingar og drykki í veitingasölum GM þegar vellirnir eru opnir fyrir leik. Seldar eru flestar hefðbundnar veitingar og er boðið upp á rétti af grilli.


Í Kletti er veitingastaðurinn BLIK Bistro & Grill sem opinn er öllum allt árið um kring. Boðið er upp á sérrétti í tengslum við stærri viðburði eins og t.d. Meistaramót eða stærri opin mót. Enn fremur er boðið upp á sérstaka matseðla fyrir hópa.


Hægt er að bóka hópa á báða vellina og í veitingasölu en hópum er bent á að nauðsynlegt er að panta með fyrirvara og enn fremur að hafa samband við veitingasölur vegna veitinga á vallasvæðum GM.


Hægt er að taka á móti allt að 180 manna hópum í sitjandi borðhald á BLIK og er fullbúið eldhús í húsinu.

Inniæfingaaðstaða og golfhermar

Inniæfingaaðstaða GM er á jarðhæðinni í Íþróttamiðstöðinni. Þar eru 5 TrackMan golfhermar og aðstaða til þess að slá í net og pútta.


Golfhermarnir inni í sal bera nöfnin

Lágafell (næst suðurvegg),

Mosfell (í miðjunni)

og Úlfarsfell (næst norðurglugga).

Lokaði hermirinn er við ganginn að æfingasalnum
og
opni hermirinn er við stigaganginn
í austurhluta neðri hæðarinnar.

Eftir Ágúst Jensson 24. apríl 2025
Ágætu GM félagar. Gleðilegt sumar :) Það er gaman að geta sagt frá því í tilefni sumardagsins fyrsta að við ætlum að opna Hlíðavöll og Bakkakot á næstu dögum. Næstkomandi sunnudag 27. apríl verður hinn árlegi vinnudagur á Hlíðavelli og ætlum við að hefjast handa kl. 10:00. Við hvetjum sem flest ykkar til þess að mæta og hjálpa okkur að standsetja völlinn fyrir opnun. Það hefur verið frábær mæting undanfarin ár og við vonum að svo verði einnig í ár. Að loknum vinnudegi eða upp úr kl. 13:30 fá svo þau ykkar sem tóku þátt í honum forskot á sæluna og við ræsum út af öllum teigum eftir léttan hádegisverð. Hlíðavöllur opnar svo formlega mánudaginn 28. apríl. Bakkakotið opnar fimmtudaginn 1. maí og hlökkum við til að taka á móti öllum okkar kylfingum. Við vitum að þið eruð orðin spennt að komast út á golfvöll :) Við opnum fyrir rástímaskráningu á morgun föstudag kl. 14:00. Til að byrja með ætlum við að hafa rástímaskráninguna þannig að á virkum dögum spilast Hlíðavöllur sem tveir 9 holur vellir en um helgar verður hann 18 holur. Það er því þannig ( líkt og er ávallt hjá okkur á haustin) að ef þið ætlið að spila 18 holur á virkum degi þá þurfið þið að bóka ykkur á bæði fyrri og seinni 9. Er þetta gert þar sem reynslan hefur sýnt okkur að margir kylfingar spila bara 9 holur svona í byrjun sumars og því getum við bæði komið fleirum að og einnig dreifist umferðin betur á báðar lykkjurnar. Við vonum að þið takið vel í þetta hjá okkur. Við stefnum á að hafa fyrirkomulagið svona fyrstu 2 - 4 vikurnar. VIð viljum sjá hvernig þetta gengur hjá okkur og yrðum ykkur þakklát fyrir að láta okkur vita hvort þið séuð sátt við þetta fyrirkomulag eða ekki :) Til að byrja með verður okkar vellir eingöngu opnir fyrir meðlimi Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn :)
Eftir Ágúst Jensson 15. apríl 2025
Æfingasvæðið á Hlíðavelli opnar á morgun miðvikudaginn 16. apríl kl. 15:00. Svæðið hefur þornað umtalsvert undanfarna daga og við ætlum því að opna það. Það er verið að vinna í því núna, koma mottunum út á svæðið, yfirfara boltavélina og ýmislegt fleira. Við munum einnig opna inn á æfingaflatirnar tvær sem þar eru. Til að byrja með (eða þar til að við opnum Hlíðavöll) verður boltavélin opin frá kl. 09:00 til 21:00. Yfir páskana verður opnunin þó með öðruvísi sniði eða sem hér segir. Fimmtudagur (skírdagur) 12:00 - 19:00 Föstudagurinn langi 12:00 - 18:00 Laugardagur 10:00 - 18:00 Sunnudagur (páskadagur) 12:00 - 18:00 Mánudagur (annar í páskum) 12:00 - 20:00 Golfhermarnir okkar eru að sjálfsöðu ennþá opnir og verður venjulegur opnunartími yfir páskana að því undanskildu að lokað er á Föstudaginn langa sem og á pásksdag.
Eftir Ágúst Jensson 1. apríl 2025
Veðrið hefur verið okkur ansi hliðhollt undanfarna daga. Nokkuð er síðan að borið var á flatir og þær sandaðar. Nú í dag var svo farið af stað og byrjað að slá flatirnar á Hlíðavelli. Það er ekki oft sem við förum svona snemma af stað með sláttinn þannig að þetta er bara spennandi :)
Eftir Ágúst Jensson 6. mars 2025
Kæru félagar GM 65+ SNILLINGAR GANGA SANNARLEGA INN Í NÝTT GOLFÁR MEÐ FÖGNUÐ Í HJARTA.
Eftir Ágúst Jensson 3. mars 2025
Á laugardaginn fór fram frumraun Golfsixes hér á landi og var það haldið sem innanfélagsmót á neðri hæð Kletts í golfhermaaðstöðu okkar. Golfsixes er golfmót fyrir byrjendur og þá sem eru að hefja keppnisferilinn sinn og er það á vegum R&A.
Eftir Ágúst Jensson 25. febrúar 2025
Við minnum á að ganga þarf frá greiðslu árgjalda í GM fyrir 28. febrúar næstkomandi.
Eftir Ágúst Jensson 10. febrúar 2025
Landsliðshópur Golfsambands Íslands var um helgina í æfingabúðum og tóku þau meðan annars golfæfingu í Fellinu í Varmá líkt og síðustu vetra. Yfir vetrartímabilið eru nokkrar landsliðshelgar þar sem er prógram fyrir kylfingana í formi mælinga, æfinga, fyrirlestra og fleira. Ólafur Loftsson landsliðsþjálfari sér um að skipuleggja þessar helgar en einnig er farið í eina æfingaferð á ári hverju þar sem þjálfarar koma með og var farið til Spánar í ár á La Finca.
7. febrúar 2025
Birkir Már Birgisson er nýr vallastjóri Hlíðavallar og mun hann hefja störf þann 1. apríl næstkomandi.
7. febrúar 2025
Felix Starke sem hefur verið hjá okkur undanfarin fimm ár hefur ákveðið að flytja aftur heim til Þýskalands.
30. janúar 2025
Pétur Valgarðsson golfkennaranemi býður nú upp á golfkennslu í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og er hægt að bóka tíma á Noona.