Opnun golfvalla

Ágætu GM félagar.
Gleðilegt sumar :)
Það er gaman að geta sagt frá því í tilefni sumardagsins fyrsta að við ætlum að opna Hlíðavöll og Bakkakot á næstu dögum.
Næstkomandi sunnudag 27. apríl verður hinn árlegi vinnudagur á Hlíðavelli og ætlum við að hefjast handa kl. 10:00. Við hvetjum sem flest ykkar til þess að mæta og hjálpa okkur að standsetja völlinn fyrir opnun. Það hefur verið frábær mæting undanfarin ár og við vonum að svo verði einnig í ár. Að loknum vinnudegi eða upp úr kl. 13:30 fá svo þau ykkar sem tóku þátt í honum forskot á sæluna og við ræsum út af öllum teigum eftir léttan hádegisverð. Hlíðavöllur opnar svo formlega mánudaginn 28. apríl.
Bakkakotið opnar fimmtudaginn 1. maí og hlökkum við til að taka á móti öllum okkar kylfingum. Við vitum að þið eruð orðin spennt að komast út á golfvöll :)
Við opnum fyrir rástímaskráningu á morgun föstudag kl. 14:00. Til að byrja með ætlum við að hafa rástímaskráninguna þannig að á virkum dögum spilast Hlíðavöllur sem tveir 9 holur vellir en um helgar verður hann 18 holur. Það er því þannig ( líkt og er ávallt hjá okkur á haustin) að ef þið ætlið að spila 18 holur á virkum degi þá þurfið þið að bóka ykkur á bæði fyrri og seinni 9. Er þetta gert þar sem reynslan hefur sýnt okkur að margir kylfingar spila bara 9 holur svona í byrjun sumars og því getum við bæði komið fleirum að og einnig dreifist umferðin betur á báðar lykkjurnar. Við vonum að þið takið vel í þetta hjá okkur. Við stefnum á að hafa fyrirkomulagið svona fyrstu 2 - 4 vikurnar. VIð viljum sjá hvernig þetta gengur hjá okkur og yrðum ykkur þakklát fyrir að láta okkur vita hvort þið séuð sátt við þetta fyrirkomulag eða ekki :)
Til að byrja með verður okkar vellir eingöngu opnir fyrir meðlimi Golfklúbbs Mosfellsbæjar.
Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn :)