40 ára afmæli Hlíðavallar.
Ágúst Jensson • 27. júní 2026

Vígslumót Hlíðavallar var haldið 28. júní, 1986

Ágætu kylfingar.
Á morgun sunnudaginn 28. júní eru fjörutíu ár síðan að vígslumót Hlíðavallar var spilað.
Við ætlum að sjálfsögðu að halda upp á það og ætlum að bjóða öllum upp á afmælisköku í tilefni dagsins :)
Það voru stórhuga kylfingar sem fóru af stað árið 1980 með hugmynd um að stofna golfklúbb í Mosfellsbæ, þar sem fremstir í flokki voru þeir Georg Tryggvason heitinn og Örn Höskuldsson.
Brynhildur dóttir Georg hefur tekið saman og sett á blað hvernig Hlíðavöllur varð til á sínum tíma og er það ansi skemmtileg frásögn um óbilandi trú á verkefninu og mikla þrautsegju þeirra sem þar voru að verki.
Hér er hlekkur inn á þessa skemmtilegu frásögn. Upphaf Hlíðavallar.


