SUMARNÁMSKEIÐ BARNA

GOLF- OG LEIKJANÁMSKEIÐ GM

Karl Ómar Karlsson PGA golfkennari (kalli@golfmos.is) er með yfirumsjón með námskeiðunum en leiðbeinendur eru afrekskylfingar í GM með reynslu af kennslu á golfnámskeiðum.

Golfklúbbur Mosfellsbæjar býður upp á golf og leikjanámskeið fyrir börn á aldrinum 6-12 ára í sumar. Námskeiðin eru byggð upp á skemmtilegum leikjum bæði á golfvellinum og í hans nánasta umhverfi. Golfið verður aldrei langt undan en einnig verður námskeiðið brotið upp með skemmtilegri dagskrá!

Námskeiðin henta vel fyrir alla krakka, hvort sem þau hafa prófað golf áður eða ekki. Ekki er nauðsynlegt að eiga búnað til golfiðkunar – allt slíkt er á svæðinu. Krakkar þurf að taka með sér nesti en hádegismatur er innifalinn í námskeiðinu. Mikilvægt að vera alltaf klædd eftir veðri.

Námskeiðin eru á eftirfarandi dagsetningum sumarið 2026:

Júní

15. - 19. júní (4 dagar - ekki er námskeið 17. júní)

Júlí

6. - 10. júlí (5 dagar)

13. - 17. júlí (5 dagar)

20. - 24. júlí (5 dagar)

27. - 31. júlí (5 dagar)

Ágúst

4. - 7. ágúst (4 dagar - ekki er námskeið 3. ágúst)

10. - 14. ágúst (5 dagar)


Skráning hefst 2. apríl klukkan 10:00 í hnappinum hér fyrir neðan

Fyrirkomulag og dagskrá

Námskeiðin eru kennd á milli klukkan 8:15 og 12:15 á daginn. Klukkan 12:15 er boðið upp á hádegismat innifalið í námskeiðinu en klukkan 13:00 hefjast golfæfingar hjá æfingahópum GM og eru allir sem skráðir eru á golfnámskeið velkomnir að mæta á þær æfingar endurgjaldslaust. Eftir að námskeiði lýkur er iðkendum boðið að mæta frítt á golfæfingar út sumarið.


Golfæfingahóparnir sem um ræðir eru á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum:


13:00 - 13:50

- 5-8 ára kk

- 5-8 ára kvk



13:00 - 13:50

- 9-10 ára kk

- 9-10 ára kvk


14:00 - 14:50

- 11-12 ára kk

- 11-12 ára kvk


Þeir sem vilja mæta á æfingu kl 14:00 geta fengið æfingabolta og æft sig sjálf á meðan. Einnig er aðstaða á neðri hæð íþróttamiðstöðvarinnar til að slappa af eða æfa sig í golfi.


  • Ef iðkandi ætlar að fá golfbox númer og fá forgjöf, spila á vallarsvæðum GM og taka þátt í keppni fyrir GM verður viðkomandi að ganga í klúbbinn.
  • Til að ganga í klúbbinn þarf að sækja um aðild.
  • Verðskrá má finna hér.
  • Einnig er í lagi að mæta á námskeið og mæta á æfingar milli 13:00 - 15:00 í allt sumar án þess að ganga í klúbbinn en þá er ekki hægt að spila, keppa, fá golfbox aðgang og forgjöf.
  • Ekki er biðlisti í klúbbinn fyrir iðkendur undir 18 ára sem æfa golf hjá GM.


Námskeiðin

Verð á námskeiðin er 24.900 kr (19.900 kr fyrir 4 daga námskeið) og innifalið í námskeiðsgjaldi er:

  • Grillveislu í lok námskeiðs
  • Hádegismatur 12:15 - 13:00 (einnig skal mæta með nesti sem er fyrr um daginn)
  • GM buff
  • Æfingaboltar á æfingasvæði GM við Hlíðavöll
  • Æfingagjöld út sumarið 2026 (Skráning á golfæfingar hjá GM)

Námskeiðin eru opin fyrir börn fædd á árunum 2014-2020.

Í SportAbler er skráður 15% systkinaafsláttur í þessum námskeiðum.

Komdu og vertu með á skemmtilegasta námskeiði sumarsins!

Nánari upplýsingar um námskeiðin er hægt að fá í tölvupósti á netfangið dagur@golfmos.is

Eftir Ágúst Jensson • 24. september 2026
Úrslit innanfélagsmótaraða GM
Eftir Dagur Ebenezersson • 15. september 2026
Ásgeir Páll sigraði TITLEIST Unglingaeinvígið í Mos
Eftir Dagur Ebenezersson • 9. september 2026
Kristján Karl er stigameistari unglinga
Eftir Dagur Ebenezersson • 7. september 2026
Ásgeir, Elísa og Anna sigruðu á síðasta móti sumarsins í Golf14
Eftir Dagur Ebenezersson • 2. september 2026
Úrslit úr Prósjoppumóti 5 - Betri bolti
Eftir Ágúst Jensson • 31. ágúst 2026
Bændaglíma Golfklúbbs Mosfellsbæjar
Eftir Dagur Ebenezersson • 27. ágúst 2026
Úrslit úr Prósjoppumóti 4 - Texas-scramble
Eftir Dagur Ebenezersson • 25. ágúst 2026
Úrslit úr Íslandsmóti golfklúbba í flokki 50+
Eftir Dagur Ebenezersson • 23. ágúst 2026
Eiríka og Emil eru Íslandsmeistarar í höggleik 2026
Eftir Dagur Ebenezersson • 19. ágúst 2026
Úrslit úr Prósjoppumóti 3 - Reipisgolf á Hlíðavelli