VALLASVÆÐI OG AÐSTAÐA

Golfklúbbur Mosfellsbæjar hefur yfir að ráða tveimur ólíkum en yndislegum vallasvæðum. Það er ekki ofsögum sagt að okkur þyki vænt um vallasvæðin okkar. Hvort svæði hefur sína sérstöðu sem skila sér í einstakri upplifun kylfinga sem leika vellina.

Á báðum svæðum er að finna aðstöðu til æfinga. Æfingasvæði með púttflöt og glompu í Bakkakoti en á Hlíðavelli er æfingasvæði þar sem er aðstaða fyrir allar æfingar. Þar er nú hægt að slá af grasi ásamt góðum pútt- og vippflötum og glompu. Veitingasölu og skála er að finna á báðum vallasvæðum og eru seldar veitingar þar meðan á golfleik stendur.

Það er mikill kostur að vera í golfklúbb sem býður upp á tvö vallasvæði, með því er reynt að tryggja að annað vallasvæðið sé alltaf opið þannig að félagsmenn eigi alltaf kost á því að komast í golf.

Hlíðavöllur

Hlíðavöllur er staðsettur við Leirvog í Mosfellsbæ og er 18 holu keppnisvöllur. Völlurinn liggur við ströndina og er óviðjafnanlegt útsýni bæði til sjávar og fjalla. Hlíðavöllur er 5.445 metrar á gulum teigum og 4.678 metrar á rauðum.

Völlurinn er fjölbreyttur og skemmtilegur með mörgum áskorunum. Eldri hluti Hlíðavallar er tiltölulega stuttur og eru flatir þar oft á tíðum aðeins upphækkaðar. Á nýrri hluta vallarins eru brautirnar talsvert lengri og flatir almennt mjög stórar.

Vallarmet Hlíðavallar

Hvítir -  Eyþór Hrafnar Ketilsson 63 högg (2. júlí 2025)

Gulir - Arnar Daði Svavarsson 62 högg (30. maí 2026)

Bláir -  Bryndís Eva Ágústsdóttir 67 högg (17. ágúst 2024)

Rauðir - Auður Bergrún Snorradóttir 68 högg (19. júní 2024)


Vallarmet Bakkakots

Gulir - Rafn Stefán Rafnsson 71 högg (7. ágúst 2026)

Rauðir - Eyþór Ágúst Kristjánsson 69 högg (30. júní 2026)

Bakkakot

Bakkakot er 9 holu völlur staðsettur í Mosfellsdal. Einkenni Bakkakots má segja að séu stuttar brautir og trjágróður en í gegnum árin hefur mikið verið gróðursett á svæðinu og er staðurinn sannkölluð sveitasæla stutt frá ys og þys borgarinnar.

9 holur í Bakkakoti eru 2.051 metrar af gulum teigum eða 4.102 metrar á 18 holum. Það er þó ekki svo endilega auðvelt að skora völlinn vel þó hann sé stuttur. Beita þarf mismunandi höggum og skipta staðsetningar miklu máli til að ná góðu skori. Flatir á vellinum teljast vera í minni kantinum og því þarf nákvæm högg til að koma sér í fuglafæri.

Æfingasvæði Hlíðavallar

Á Hlíðavelli er að finna æfingasvæði og eru boltar seldir þar. Slegið er af mottum en einnig er þar stór grasteigur, þegar grasteigurinn er í notkun er það auglýst sérstaklega.

Æfingasvæðið á Hlíðavelli er opið alla daga vikunnar frá kl. 08:00 til 22:00. Síðustu boltar eru seldir í boltavélinni kl. 21:30.


Tvær púttflatir eru sitthvorum megin við Íþróttamiðstöðina Klett, pútt-, vipp- og glompuflatir eru við æfingasvæðið og vipp-, pitch- og glompuflöt er við vélaskemmu Hlíðavallar.

Æfingasvæði Bakkakots

Í Bakkakoti er vipp, glompu og púttæfingasvæði við skálann

Veitingasölur og aðstaða

Félagsmenn og gestir geta keypt veitingar og drykki í veitingasölum GM þegar vellirnir eru opnir fyrir leik. Seldar eru flestar hefðbundnar veitingar og er boðið upp á rétti af grilli.


Í Kletti er veitingastaðurinn BLIK Bistro & Grill sem opinn er öllum allt árið um kring. Boðið er upp á sérrétti í tengslum við stærri viðburði eins og t.d. Meistaramót eða stærri opin mót. Enn fremur er boðið upp á sérstaka matseðla fyrir hópa.


Hægt er að bóka hópa á báða vellina og í veitingasölu en hópum er bent á að nauðsynlegt er að panta með fyrirvara og enn fremur að hafa samband við veitingasölur vegna veitinga á vallasvæðum GM.


Hægt er að taka á móti allt að 180 manna hópum í sitjandi borðhald á BLIK og er fullbúið eldhús í húsinu.

Inniæfingaaðstaða og golfhermar

Inniæfingaaðstaða GM er á jarðhæðinni í Íþróttamiðstöðinni. Þar eru 5 TrackMan golfhermar og aðstaða til þess að slá í net og pútta.


Golfhermarnir inni í sal bera nöfnin

Lágafell (næst suðurvegg),

Mosfell (í miðjunni)

og Úlfarsfell (næst norðurglugga).

Lokaði hermirinn er við ganginn að æfingasalnum
og
opni hermirinn er við stigaganginn
í austurhluta neðri hæðarinnar.

Eftir Ágúst Jensson • 24. september 2026
Úrslit innanfélagsmótaraða GM
Eftir Dagur Ebenezersson • 15. september 2026
Ásgeir Páll sigraði TITLEIST Unglingaeinvígið í Mos
Eftir Dagur Ebenezersson • 9. september 2026
Kristján Karl er stigameistari unglinga
Eftir Dagur Ebenezersson • 7. september 2026
Ásgeir, Elísa og Anna sigruðu á síðasta móti sumarsins í Golf14
Eftir Dagur Ebenezersson • 2. september 2026
Úrslit úr Prósjoppumóti 5 - Betri bolti
Eftir Ágúst Jensson • 31. ágúst 2026
Bændaglíma Golfklúbbs Mosfellsbæjar
Eftir Dagur Ebenezersson • 27. ágúst 2026
Úrslit úr Prósjoppumóti 4 - Texas-scramble
Eftir Dagur Ebenezersson • 25. ágúst 2026
Úrslit úr Íslandsmóti golfklúbba í flokki 50+
Eftir Dagur Ebenezersson • 23. ágúst 2026
Eiríka og Emil eru Íslandsmeistarar í höggleik 2026
Eftir Dagur Ebenezersson • 19. ágúst 2026
Úrslit úr Prósjoppumóti 3 - Reipisgolf á Hlíðavelli