65+ starf GM fær hvatningarverðlaun UMSK

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 31. mars 2023

99. ársþing UMSK (Ungmennasamband Kjalnesinga) fór fram í gær og þar tóku fulltrúar 65+ starfsins okkar við Hvatningarverðlaunum UMSK. Þetta starf hefur stækkað og dafnað alveg ótrúlega hratt hjá okkur síðstliðið ár og það var virkilega gaman og mikill heiður að fá þessi verðlaun og hvetju þau okkur til áframhaldandi góðra verka.

Það voru fulltrúar 65+ starfsins og nefndarfólkið Hrefna Birgitta, Svanberg, Ingveldur og Páll sem tóku við verðlaununum fyrir hönd hópsins.

Óskum við þeim kærlega til hamingju og við erum virkilega stolt af því góða starfi sem þau eru að vinna.