Aðalfundur GM 2026 - Framboð til stjórnar
Ágúst Jensson • 9. nóvember 2026

Aðalfundur GM 2026 - framboð til stjórnar.
Nú styttist í aðalfund GM fyrir starfsárið 2026, stefnt er að því að hann verði haldinn mánudaginn 7. desember.
Í kjöri til stjórnar á komandi fundi eru formaður ásamt þremur stjórnarmeðlimum ásamt varastjórn.
Þau sem eru í kjöri núna ætla öll að gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Þau ykkar sem áhuga hafa á því að bjóða sig fram til stjórnar eru beðin um að gera það með því að sendta tilkynningu þess efnis á golfmos@golfmos.is. Sú tilkynning þarf að berast fyrir sunnudaginn 15. nóvember..
Aðalfundur verður auglýstur á næstu dögum.
