Aðalfundur GM - Skýrsla stjórnar og ársreikningur

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 24. nóvember 2022

Ágætu GM félagar.

Við minnum á aðalfund GM sem fram fer í kvöld kl. 20:00 í Íþróttamiðstöðinni okkar.

Hvetjum við ykkur sem flest til þess að mæta og hafa þannig áhrif á okkar starf.

Einnig verður i fyrsta sinn í langan tíma kosning á aðalfundi þar sem við erum með fimm framboð til stjórnar ( sjá hér ) í þau þrjú sæti sem laus eru.

Skýrsla stjórnar og ársreikningurinn verða líkt og áður einungis rafræn.