Aðalfundur Golfklúbbs Mosfellsbæjar 2026

Aðalfundur Golfklúbbs Mosfellsbæjar 2026
Ágætu GM félagar.
Aðalfundur Golfklúbbs Mosfellsbæjar verður haldinn mánudaginn 7. desember 2026 í íþróttamiðstöðinni Kletti.
Fundurinn hefst stundvíslega kl. 17:30 og er dagskrá hans sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundaritara.
2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á vegum félagsins
3. Áritaðir reikningar kynntir
4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikningar lagðir fram til samþykktar
5. Lagabreytingar
6. Rekstraráætlun komandi starfsárs kynnt
7. Ákvörðun félagsgjalda
8. Kosning stjórnar, formanns og tveggja skoðunarmanna reikninga
9. Kosning aganefndar og kjörnefndar
10. Önnur mál.
Við viljum hvetja ykkur til þess að mæta á aðalfundinn, taka þátt í þeim umræðum sem þar eru og hafa þannig áhrif á framtíð Golfklúbbs Mosfellsbæjar.
Heildarendurskoðun laga Golfklúbbs Mosfellsbæjar.
Stjórn Golfklúbbs Mosfellsbæjar leggur fram meðfylgjandi tillögu að heildarendurskoðun laga GM fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður mánudaginn 7. desember næstkomandi.
Tillagan byggist á leiðbeiningum og sniðmáti laganefndar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. ÍSÍ sendi íþróttafélögum bréf síðastliðið vor þar sem vakin var athygli á nauðsynlegri endurskoðun félagslaga í kjölfar breytinga sem samþykktar voru á Íþróttaþingi 2025.
Í bréfinu er farið yfir mikilvæg ákvæði sem eiga að vera í lögum íþróttafélaga. Þar á meðal eru ákvæði um tilgang og starfsemi, félagsaðild, boðun og dagskrá aðalfunda, tímanlega kynningu tillagna og staðfestingu laga. Jafnframt er lögð áhersla á góða stjórnarhætti og að lög félaganna samræmist reglum íþróttahreyfingarinnar.
Til stuðnings þessari vinnu hefur laganefnd ÍSÍ tekið saman lagaviðmið og leiðbeinandi sniðmát. Þar er fjallað bæði um ákvæði sem félögum ber að hafa í lögum sínum og önnur sem talin eru æskileg. Félögum er heimilt að aðlaga textann að eigin starfsemi.
Með þessum breytingum ættu lög GM að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru af hálfu ÍSÍ og einnig til þess að GM verði skráð sem almannaheillafélag og á almannaheilla skrá skattsins sem er gríðarlega þýðingarmikið fyrir golfklúbbinn.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
1. Félagsaðild og leikréttur
Skýrari aðgreining er gerð á félagsaðild og rétti til að leika á golfvöllum félagsins. Félagsaðild veitir ekki sjálfkrafa leikrétt.
2. Fjöldatakmarkanir og biðlistar
Í stað heimildar til að takmarka heildarfjölda félagsmanna er gert ráð fyrir hámarksfjölda í einstökum leikréttarflokkum og formlegum biðlistum.
3. Atkvæðisréttur
Aldursmark lækkar úr 18 árum í 16 ár. Kjörgengi til stjórnar miðast áfram við 18 ár.
4. Aðalfundur
Aðalfund skal halda fyrir 15. desember í stað 31. desember. Boðunarfrestur lengist úr tveimur í þrjár vikur.
4. Árgjöld og fjárhagsáætlun
Rekstraráætlun næsta árs er lögð fram til samþykktar aðalfunds sem inniheldur m.e. árgjöld komandi árs sem og fjárfestingar.
6. Lagabreytingar og framboð
Frestur til að skila lagabreytingum færist frá 1. október í tvær vikur fyrir aðalfund. Sama tveggja vikna regla kemur í stað 15. nóvember fyrir framboð.
7. Félagsfundir
Nú þurfa 200 félagsmenn í stað 50 að óska eftir félagsfundi.
8. Stjórn félagsins
Stjórn verður áfram sjö manna, en varamönnum fækkar úr fjórum í tvo.
9. Brottvísun og agaviðurlög
Málsmeðferð verður skýrari. Stjórn tekur ákvörðun um brottvísun án áskilins samráðs við aganefnd og kæruleið færist frá aðalfundi til Dómstóls ÍSÍ.
10. Félagsslit
Reglur um félagsslit breytast verulega. Nýtt ákvæði kveður á um að hreinar eignir félagsins renni til Mosfellsbæjar við slit.
11. Staðfesting laga
Nýtt ákvæði gerir gildistöku laga og síðari breytinga háða staðfestingu UMSK og framkvæmdastjórnar ÍSÍ.
Hér að neðan má sjá tillögu stjórnar GM að nýjum lögum golfklúbbsins.
1. gr. Heiti og heimili
Félagið heitir Golfklúbbur Mosfellsbæjar, skammstafað GM. Heimili þess og varnarþing er í Mosfellsbæ.
2. gr. Aðild og regluverk
Félagið er aðili að Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK) og Golfsambandi Íslands (GSÍ) og hlýtur aðild sína að Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) í gegnum íþróttahérað sitt. Félagið er háð lögum og reglum viðkomandi samtaka eftir því sem við á.
3. gr. Tilgangur og starfsemi
Tilgangur félagsins er að efla golfíþróttina og íþróttastarf á starfssvæði sínu, skapa félagsmönnum aðstöðu til golfiðkunar og stuðla að kynningu og útbreiðslu golfíþróttarinnar. Félagið vinnur að tilgangi sínum með æfingum, keppni, fræðslu og félagsstarfi sem stuðlar að heilbrigðu líferni. Vallarsvæði félagsins eru Hlíðavöllur við Leiruvog í Mosfellsbæ og Bakkakotsvöllur við Bakkakot í Mosfellsdal.
4. gr. Félagsaðild og félagsgjöld
Félagsaðild er frjáls öllum þeim sem gangast undir lög og reglur félagsins. Einstaklingar skulu sækja skriflega um félagsaðild og tekur hún gildi þegar viðkomandi hefur greitt þau félagsgjöld sem ákveðin hafa verið í samræmi við lög félagsins.
Allir þeir sem greiða aðildar- eða æfingagjöld til félagsins eða iðka íþróttir á vegum félagsins skulu einnig skráðir sjálfkrafa í félagatal þess.
Úrsögn úr félaginu skal tilkynna stjórn skriflega eða með öðrum sannanlegum hætti og miðast við áramót, nema annað sé ákveðið í samræmi við reglur félagsins.
Félagsmenn öðlast ekki sjálfkrafa aðgengi að golfvöllum eða annarri aðstöðu félagsins. Reglur um aðgengi eru í höndum stjórnar skv. 5. gr.
5. gr. Aðildar-, aðstöðu- og iðkunargjöld
Aðstaða félagsins til golfiðkunar er takmörkuð auðlind. Það er hlutverk stjórnar félagsins að stýra aðgengi að allri aðstöðu félagsins með tilliti til afkastagetu valla og æfingaaðstöðu, upplifunar félagsmanna og annarra rekstrarlegra þátta.
Stjórn félagsins skal setja reglur um ólíka flokka „aðildar“ eða leikréttar að golfvöllum félagsins og aðgengi að þeirri aðstöðu sem stendur félagsmönnum til boða. Þar skal meðal annars kveða á um leikrétt viðkomandi flokka á vallarsvæðum félagsins, fyrirfram skilgreinda leiktíma og önnur þau fríðindi sem félagið hefur upp á að bjóða eða takmarkanir á þeim.
Stjórn félagsins ákvarðar árgjöld hvers flokks til samræmis við ólíkar leikheimildir þeirra eða aðgengi að annarri aðstöðu. Þá er stjórn heimilt að ákvarða inntökugjald fyrir viðkomandi flokka eða setja kröfur um þátttöku einstaklinga á nýliða/fræðslu námskeiði fyrir inngöngu.
Ákvarðanir um gjaldskrá félagsins, breytingar á henni, undanþágur eða afslætti til tiltekinna hópa eru í höndum stjórnar.
Ólík aðild einstaklinga að leikrétti eða aðgengi að aðstöðu hefur ekki áhrif á félagsaðild viðkomandi eða almenn félagsréttindi hans samkvæmt lögum félagsins og lögum ÍSÍ.
6. gr. Hámarksfjöldi aðilda, biðlistar og innheimta gjalda
Stjórn félagsins skal setja viðmið um hámarksfjölda þeirra einstaklinga sem heimilt er að skrá í hvern flokk aðildar á hverju ári sem skulu byggja á afkastagetu golfvalla og annarrar aðstöðu félagsins.
Verði eftirspurn umfram hámarksfjölda skv. ofangreindu viðmiði skal stjórn félagsins setja reglur um skráningu félagsmanna á biðlista ásamt forgangsréttarákvæðum sem byggja á málefnalegum og gagnsæjum sjónarmiðum.
Stjórn félagsins skal setja reglur um innheimtu og getur aðild félagsmanns fallið niður vegna greiðslubrests að undangenginni tilkynningu og hæfilegum fresti til úrbóta.
7. gr. Reikningsár og reikningsskil
Stjórn skal sjá til þess að gerður sé ársreikningur fyrir félagið samkvæmt lögum, reglum og góðri reikningsskilavenju. Hann skal sýna yfirlit um rekstur og framkvæmdir á reikningsárinu og efnahagsreikning í lok reikningsárs ásamt skýringum. Í ársreikningi skal koma fram yfirlit um fjárhagslegar skuldbindingar félagsins.
Tveir kjörnir skoðunarmenn skulu yfirfara ársreikninginn og veita honum álit sitt og undirritun áður en hann er lagður fyrir aðalfund félagsins til samþykkis.
Reikningsár og starfstímabil félagsins er 1. nóvember til og með 31. október.
8. gr. Aðalfundur
Aðalfundur er æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda fyrir 15. desember ár hvert og boða með minnst þriggja vikna fyrirvara með tölvupósti til félagsmanna og birtingu á vef félagsins. Fundurinn er lögmætur ef rétt er til hans boðað.
Tillögur að lagabreytingum, framboð og aðrar tillögur til aðalfundar skulu berast félaginu skriflega eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. Dagskrá og tillögur skulu vera félagsmönnum aðgengilegar eigi síðar en sex dögum fyrir fund.
Allir félagsmenn hafa rétt til setu á aðalfundi, málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn sem náð hafa 16 ára aldri og kjörgengi miðast við 18 ára aldur. Fastráðnir starfsmenn félagsins eru ekki kjörgengir til stjórnar.
Einfaldur meirihluti greiddra atkvæða ræður úrslitum nema annað sé tekið fram í lögum þessum. Lagabreytingar krefjast samþykkis tveggja þriðju hluta greiddra atkvæða. Kosning fer almennt fram með handauppréttingu en skriflega eða rafrænt komi fram ósk þess efnis.
Að jafnaði skal ekki afgreiða önnur mál en þau sem birt eru á dagskrá. Með samþykki tveggja þriðju hluta greiddra atkvæða má taka önnur mál til afgreiðslu; þó má ekki leggja fram nýjar efnislegar lagabreytingar með þeim hætti, nema þær séu nauðsynleg eða eðlileg afleiðing áður auglýstra tillagna.
Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi og framkvæmdir.
3. Ársreikningur kynntur og lagður fram til samþykktar.
4. Lagabreytingar, ef við á.
5. Rekstraráætlun næsta starfsárs lögð fram til samþykktar.
6. Kosning formanns, stjórnarmanna og varamanna samkvæmt 11. gr.
7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
8. Kosning aganefndar og kjörnefndar samkvæmt 11. gr.
9. Önnur mál.
9. gr. Aukaaðalfundur
Aukaaðalfund má halda þegar stjórn telur það nauðsynlegt eða hún er orðin óstarfhæf. Boðunar- og tilkynningarfrestir mega vera helmingi styttri en til reglulegs aðalfundar. Á aukaaðalfundi má ekki breyta lögum nema samkvæmt tillögu framkvæmdastjórnar ÍSÍ. Ekki má kjósa nýja stjórn nema bráðabirgðastjórn ef meirihluti kjörinnar stjórnar hefur hætt störfum eða stjórnin telur sig óstarfhæfa. Að öðru leyti gilda sömu reglur og um aðalfund. Framhaldsaðalfund má boða samkvæmt ákvörðun fundar og skal hann fara fram innan fjögurra vikna.
10. gr. Almennir félagsfundir
Stjórn skal boða almennan félagsfund þegar hún telur þörf á því eða minnst 200 félagsmenn óska þess skriflega. Boðunar- og tilkynningarfrestir skulu vera þeir sömu og til aukaaðalfundar.
11. gr. Stjórn, framkvæmdastjóri og nefndir
Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli aðalfunda. Hún er skipuð sjö mönnum, þ.e. formanni og sex meðstjórnendum. Formaður er kosinn sérstaklega til eins árs; þrír meðstjórnendur eru kosnir til tveggja ára í senn á hverjum aðalfundi. Tveir varamenn eru kjörnir til eins árs. Stjórn skiptir sjálf með sér verkum og kýs að minnsta kosti varaformann og gjaldkera. Ef formaður hættir á kjörtímabili tekur varaformaður við til næsta kjörs og stjórn velur nýjan varaformann.
Stjórnarfundi skal halda reglulega og formaður boðar þá. Stjórn er ákvörðunarbær þegar meirihluti stjórnarmanna situr fund. Stjórnarmenn skulu víkja sæti við meðferð mála þegar aðstæður eru til þess fallnar að draga óhlutdrægni þeirra með réttu í efa.
Á aðalfundi skal kjósa þriggja manna kjörnefnd og aganefnd til tveggja ára. Framboð til stjórnar og formanns skulu berast kjörnefnd eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund, á netfang sem birt er á vef félagsins. Kjörnefnd annast kynningu frambjóðenda með jafnræði að leiðarljósi og má afla framboða þótt framboðsfrestur sé liðinn. Leitast skal við að tryggja fjölbreytta reynslu og jafnvægi kynja í stjórn.
Stjórn skipar aðrar nefndir og setur reglur um starfsemi þeirra. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur í samræmi við fyrirmæli stjórnar. Óvenjulegar eða meiriháttar ráðstafanir eru háðar sérstakri heimild stjórnar.
12. gr. Reglur, agaviðurlög og kæruréttur
Félagsmönnum ber að fylgja lögum og reglum félagsins, reglum um golfleik, umferð og umgengni á vallarsvæðum og í húsakynnum þess, golfreglum R&A og siðareglum ÍSÍ eftir því sem við á. Stjórn setur nánari reglur sem birtar skulu á vef félagsins.
Stjórn getur áminnt félagsmann eða vísað honum tímabundið eða varanlega úr félaginu ef hann brýtur lög eða reglur, vinnur gegn hagsmunum félagsins eða synir óásættanlega hegðun. Ákvörðun skal tekin á stjórnarfundi með meirihluta atkvæða og vera rökstudd. Áður en ákvörðun um brottvísun er tekin skal félagsmanni gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Ákvörðun um brottvísun úr félaginu er kæranleg til Dómstóls ÍSÍ.
13. gr. Félagsslit, sameining og skipting
Félaginu verður ekki slitið nema tveir þriðju hlutar félagsmanna samþykki það á aðalfundi og hafi tillaga um félagsslit verið tilgreind í fundarboði. Hrein eign við slit félagsins skal renna til Mosfellsbæjar, kt. 470269-5969. Sameining eða skipting félagsins skal sæta sambærilegri meðferð eftir því sem við á og samkvæmt reglum viðkomandi íþróttasamtaka.
14. gr. Gildistaka og staðfesting
Lög þessi og síðari breytingar á þeim öðlast gildi eftir að UMSK og framkvæmdastjórn ÍSÍ hafa staðfest þau.
Smelltu hér til þess að skoða núverandi lög GM
Stjórn Golfklúbbs Mosfellsbæjar
