Ásdís Eva semur við Newman University

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 6. desember 2024

Ásdís Eva Bjarnadóttir hefur skrifað undir hjá Newman University í Wichita í Kansas fylki.

Hún mun hefja nám haust 2025 og leika golf í liði skólans á skólastyrk í fjögur ár.

Keilismaðurinn Tómas Ásgeirsson leikur golf fyrir háskólann og er á fyrsta ári.

Við óskum Ásdísi innilega til hamingju og góðs gengis í þessum næsta kafla.