Ásgeir, Elísa og Anna sigruðu á síðasta móti sumarsins í Golf14

Dagur Ebenezersson • 7. september 2026

Ásgeir, Elísa og Anna sigruðu á síðasta móti sumarsins í Golf14

Síðasta Golf14 mót sumarsins fór fram um helgina og var leikið á Urriðavelli og Ljúflingi. Frábærar veðuraðstæður voru báða keppnisdagana og stóðu okkar kylfingar sig mjög vel.

Í flokki 13-14 ára drengja sigraði Ásgeir Páll Baldursson eftir baráttu við Jón Ómar og Emil Darra. Ásgeir lék hringina tvo á 71-75 (+4) og sigraði með 1 höggi. Emil Darri Birgisson einnig úr GM endaði í þriðja sæti á +7 (72-77).

í flokki 13-14 ára stúlkna á Ljúflingi sigraði Anna Dís Strange en hún lék hringina tvo á 41-41. Eygló Rún Ingadóttir einnig í GM varð önnur tveimur höggum á eftir Önnu en hún lék á 46-38.

Kristófer Jens Sandholt endaði í öðru sæti í flokki 13-14 ára drengja á Ljúflingi en hann lék á 40-38.

Elísa Bríet Róbertsdóttir sigraði í 11-12 ára stúlknaflokki á Ljúflingi en hún lék á 37-39 og sigraði með 5 högga mun.

Í flokki 10 ára og yngri stúlkna á Ljúflingi var Hrafnhildur Rún Björnsdóttir í 2. sæti á 37-44, fjórum höggum á eftir 1. sætinu. Emma Björk Hrannarsdóttir varð í 5. sæti í sama flokki.

Edvard Aron Magnússon var í 3. sæti í flokki 10 ára og yngri drengja á Ljúflingi á 38-39 höggum.

Edvard Aron Magnússon var í 3. sæti í flokki 10 ára og yngri drengja á Ljúflingi á 38-39 höggum.