Ásgeir Páll sigraði TITLEIST Unglingaeinvígið í Mos

Dagur Ebenezersson • 15. september 2026

Ásgeir Páll sigraði TITLEIST Unglingaeinvígið í Mos

TITLEIST Unglingaeinvígið í Mos fór fram í gær 14. september í haustblíðu á Hlíðavelli. Þetta var í tuttugasta og annað skiptið sem mótið fer fram og er þetta lokamót sumarsins fyrir  sterkustu kylfinga Íslands í unglingaflokkum.


Leikin var 10 manna forkeppni í þremur aldursflokkum með shootout fyrirkomulagi þar sem sá kylfingur með hæsta skorið fellur úr keppni á hverri holu. Þrír keppendur úr hverjum aldursflokki kemst í lokaeinvígið ásamt sigurvegaranum í fyrra sem í þetta skiptið var Hjalti Kristján Hjaltason.

Alls hófu 30 keppendur leiks í undankeppninni

Eftir hádegi voru leiknar 9 holur og voru eftirfarandi leikmenn í einvíginu.

Frá vinstri: Hrafnhildur Sigurðardóttir GKG, Elva María Jónsdóttir GK, Björn Breki Halldórsson GKG, Benjamín Snær Valgarðsson GKG, Arnar Daði Svavarsson GKG, Halldór Jóhansson GK, Hjalti Kristján Hjaltason GKG, Grétar Logi Gunnarsson Bender GM, Ásgeir Páll Baldursson GM, Brynjar Morgan Brynjarsson GSS.

Hörku keppni var í einvíginu og á lokaholunni var þetta milli heimamannanna Ásgeirs Páls og Grétars Loga og hafði Ásgeir betur eftir shootout frá rauða teignum þar sem hann sló nær en Grétar. Frábær árangur hjá þessum unga og efnilega dreng sem endar sumarið á tveimur sigrum í röð.

Hérna fyrir neðan má sjá heildarúrslit mótsins:

10. sæti Arnar Daði Svavarsson GKG

9. sæti Björn Breki Halldórsson GKG

8. sæti Elva María Jónsdóttir GK

7. sæti Benjamín Snær Valgarðsson GKG

6. sæti Hrafnhildur Sigurðardóttir GKG

5. sæti Hjalti Kristján Hjaltason GKG

4. sæti Brynjar Morgan Brynjarsson GSS

3. sæti Halldór Jóhansson GK

2. sæti Grétar Logi Gunnarsson Bender GM

1. sæti Ásgeir Páll Baldursson GM

Sigurvegarar Unglingaeinvígisins frá upphafi:

2005 – Sveinn Ísleifsson, GKj
2006 – Guðni Fannar Carrico, GR
2007 – Andri Þór Björnsson, GR
2008 – Guðjón Ingi Kristjánsson, GKG
2009 – Andri Már Óskarsson, GHR
2010 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
2011 – Ragnar Már Garðarson, GKG
2012 – Aron Snær Júlíusson, GKG
2013 – Ingvar Andri Magnússon, GR
2014 – Ingvar Andri Magnússon, GR
2015 – Björn Óskar Guðjónsson, GM
2016 – Henning Darri Þórðarson, GK
2017 – Ragnar Már Ríkarðsson, GM
2018 – Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
2019 – Tómas Eiríksson Hjaltested, GR
2020 – Björn Viktor Viktorsson, GL
2021 – Hjalti Kristján Hjaltason, GM
2022 – Veigar Heiðarsson, GA
2023 – Jóhann Frank Halldórsson, GR
2024 – Björn Breki Halldórsson, GKG

2025 - Hjalti Kristján Hjaltason, GM

2026 - Ásgeir Páll Baldursson, GM