Birgir Björn og Hulda Clara sigruðu í Mosóbikarnum

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 19. júní 2023

Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, sigraði í Mosóbikarnum sem fram fór á Hlíðavelli dagana 16.-18. júní. Mótið var annað mótið á stigamótaröð GSÍ á þessu ári. Hulda Clara og Saga Traustadóttir, GKG, léku frábært golf og voru jafnar á höggi undir pari eftir 54 holur. Hulda Clara stóð uppi sem sigurvegari eftir bráðabana. Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS, varð þriðja á +1 .

1. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG 215 högg (-1) (71-69-75).
2. Saga Traustadóttir, GKG, 215 högg (-1) (70-68-77).
*Hulda Clara sigraði eftir bráðabana.
3. Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS 217 högg (+1) (72-73-72).


Birgir Björn Magnússon, GK, sigraði í Mosóbikarnum sem fram fór á Hlíðavelli dagana 16.-18. júní. Mótið var annað mótið á stigamótaröð GSÍ á þessu ári.

Birgir Björn lék hringina þrjá á 11 höggum undir pari sem er frábært skor en alls léku 20 aðrir leikmenn samtals á pari vallar eða betur á þessu móti.

Jóhannes Guðmundsson, GR, varð annar á -8 samtals og Axel Bóasson, GK, varð þriðji á sama skori eða -8.

1. Birgir Björn Magnússon, GK 205 högg (-11) (67-68-70).
2.-3. Jóhannes Guðmundsson, GR 208 högg (-8) (74-67-67).
2.-3. Axel Bóasson, GK 208 högg (-8) (70-67-71).

Keppendur komu frá 14 mismunandi klúbbum víðsvegar af landinu og voru 9 þeirra með keppendur í kvenna – og karlaflokki. Flestir keppendur voru frá GKG og GM en báðir klúbbar voru með 25 keppendur í þessu móti. GR var með 24 keppendur og GK var með 13.