Golfklúbbur Brautarholts er nýr vinavöllur Golfklúbbs Mosfellsbæjar en samningur hefur verið gerður fyrir sumarið 2020. Félagar GM fá hringinn í GBR á 3500 krónur með framvísun félagsskírteinis. Brautarholt er einn af flottustu völlum landsins og við hvetjum félagsmenn til að nýta sér þennan samning og skella sér hring í sumar.