Breytingar á Hlíðavelli - nýtt teigasett
-1920w.jpg)
Líkt og kynnt var á aðalfundi GM í lok síðasta árs, þá hefur stjórn GM ákveðið að bætt verði við nýju teigasetti á Hlíðvelli, Þetta nýja teigasett verður að hluta til á núverandi teigum og að hluta til verða nýjir teigar byggðir upp.
Lengd þessa "nýja" vallar verður rétt um 4000 metrar og parið verður 76. Hér að neðan má sjá áætlaða lengd og par.
Stjórn GM vill með þessu móti bjóða okkar meðlimum upp á fjölbreyttari möguleika við sinn golfleik og mun þetta stuðla að því að allir kylfingar geti spilað Hlíðavöll af teigum sem þeim hentar og að upplifunin af golfleiknum verði mun jákvæðari og skemmtilegri. Fleiri pútt fyrir fuglum og pörum :)
Er það okkar von að við náum að klára þessa uppbyggingu fyrri hluta komandi sumars. Þessir teigar verða að sjálfsögðu með vallarmati fyrir bæði karla og konur.
Á myndinni hér að neðan má sjá ca hvar þessir teigar verða staðsettir. ( Þetta er ekki endanlegt en nokkuð nærri lagi).