Drengjasveit GM í öðru sæti í Íslandsmóti golfklúbba

Drengjasveit GM í öðru sæti í Íslandsmóti golfklúbba
Íslandsmót golfklúbba í unglingaflokkum fór fram 24. - 26. júní síðastliðinn og léku 14 ára og yngri á Flúðum og 15-18 ára á Akranesi. GM sendi 6 keppnissveitir og mikið fjör og flottur árangur hjá okkar fólki. A lið GM stóðu sig mjög vel í höggleiknum og leiddu bæði í flokki 18 ára og yngri drengja og 14 ára og yngri drengja en gáfu aðeins eftir í holukeppninni og ekki tókst að landa sigri þetta árið.
GM keppnissveit A í flokki 14 ára og yngri endaði í 2. sæti í mótinu eftir harða keppni við GKG í úrslitaleiknum sem endaði 2-1 fyrir GKG. Eftir höggleikinn var lið GM í fyrsta sæti eftir hringi upp á 68, 69 og 77 högg.

Keppnissveit B í flokki 14 ára og yngri endaði í 17. sæti.
Í flokki 18 ára og yngri drengja var GM A sveit í fyrsta sæti eftir höggleikinn en þeir léku á 67, 70 og 74 höggum. Í holukeppninni má segja að þetta hafi verið stöngin út en þeir töpuðu 2-1 á móti GA þar sem 2 leikir ráðast á lokaholunni og svo tap í bráðabana um bronsið við heimamenn og var lokaniðurstaðan í mótinu 4. sætið.

Í flokki 18 ára og yngri var lið var ein blönduð sveit GM sem endaði í 8. sæti.

A sveit GM í flokki 16 ára og yngri drengja endaði í 6. sæti.

B sveit GM í flokki 16 ára og yngri drengja endaði í 11. sæti