Eiríka, Edda, Hjalti og Pamela tóku gull í Nettó mótinu í GKG

Eiríka, Edda, Hjalti og Pamela tóku gull í Nettó mótinu í GKG
Þriðja mótið fór fram á Unglingamótaröðinni og Golf14 um helgina í GKG á Leirdalsvelli og Mýrinni og tóku Eiríka Malaika, Edda María, Hjalti Kristján og Pamela Ósk gullverðlaun í sínum flokkum.

Í flokki 15-16 ára drengja var Hjalti Kristján Hjaltason efstur á 10 höggum yfir pari (76-76-71) en hann endaði í 3. sæti í heildarkeppninni (15-18 ára). Í flokki 17-18 ára pilta var Kristján Karl Guðjónsson jafn í 6. sæti á +19 (79-74-79) og endaði jafn í 10. sæti í flokki 15-18.

Í flokki 17-18 ára stúlkna var Pamela Ósk Hjaltadóttir efst á 16 höggum yfir pari (77-75-77) en hún endaði í 2. sæti í flokki 15-18 ára. Birna Rut Snorradóttir endaði á 29 höggum yfir pari (81-83-78) í 7. sæti. Í flokki 15-16 ára stúlkna var Sara María Guðmundsdóttir jöfn í 8. sæti á 47 höggum yfir pari (86-91-83).

Í flokki 14 ára og yngri stúlkna var Eiríka Malaika Stefánsdóttir úr GM sigurvegari á 29 höggum yfir pari en hún sigraði með 13 högga mun (90-81).

Emil Darri Birgisson varð þriðji í flokki 14 ára og yngri drengja en hann lék á 16 höggum yfir pari (82-76) og 3 höggum frá efsta manni.

Edda María Hjaltadóttir sigraði í flokki 10 ára og yngri stúlkna en hún lék frábært golf, 46 högg og sigraði með 16 högga mun.

Daníel Tristan Sigurlínarson var í 3. sæti í flokki 10 ára og yngri drengja en hann var á 45 höggum, 5 höggum frá sigri.
Við óskum okkar fulltrúum innilega til hamingju með góðan árangur og góðs gengis í komandi verkefnum!
Frétt GSÍ um Nettó mótið:
https://www.golf.is/netto-mot-unglingamotaradarinnar-og-golf-14-urslit-og-myndir/