Eiríka og Emil eru Íslandsmeistarar í höggleik 2026

Dagur Ebenezersson • 23. ágúst 2026

Eiríka og Emil eru Íslandsmeistarar í höggleik 2026

Íslandsmót unglinga í höggleik fór fram dagana 20. - 22. ágúst og kepptu kylfingar í flokkum 14 ára og yngri í Þorlákshöfn en kylfingar í flokkum 15-18 ára í Keili á Hvaleyrarvelli.

Í flokki 13-14 ára stúlkna stóð Eiríka Malaika Stefánsdóttir úr GM uppi sem sigurvegari eftir stórkostlega frammistöðu þar sem hún sigraði með 9 högga mun á 12 höggum yfir pari samtals (79-72-77).

Emil Darri Birgisson gerði sér lítið fyrir og sigraði í sama flokki drengja megin en hann lék á 1 höggi yfir pari samtals (69-73-75) og sigraði með tveggja högga mun. Í þriðja sæti var Ásgeir Páll Baldursson einnig úr GM á +9 (72-77-76).

Í flokki 15-16 ára stúlkna var Sara María Guðmundsdóttir í 2. sæti á +31 (81-85-81) en heimamaðurinn Elva María Jónsdóttir varð Íslandsmeistari.

Í flokki 17-18 ára drengja var hörku barátta fram á lokaholurnar um titilinn en Kristján Karl Guðjónsson endaði að lokum í öðru sæti á 3 höggum yfir pari samtals (73-71-75), fjórum höggum á eftir Arnari Daða Svavarssyni úr GKG. Grétar Logi Gunnarsson Bender einnig úr GM varð í sjöunda sæti á +18 (71-82-81).

Við óskum nýkrýndum Íslandsmeisturum og verðlaunahöfum innilega til hamingju með frábæran árangur!