Eva í 19. sæti í Annika Invitational
Dagur Ebenezersson • 20. júní 2025

Eva í 19. sæti í Annika Invitational
Eva Kristinsdóttir, kylfingur GM, lauk leik í 19. sæti í sterku boðsmóti á vegum Annika Sörenstam, Annika Invitational. Leiknar voru 54 holur á Bokskogens vellinum í Svíðþjóð, sem er einkar glæsilegt svæði í suðurhluta landsins. Auður Bergrún Snorradóttir og Bryndís Eva Ágústsdóttir voru einnig á meðal keppenda í mótinu.
Eva lék alla hringi sína á 74 höggum, tveimur yfir pari. Hún lauk því leik á sex yfir pari í heildina og jöfn í 19. sæti mótsins.

Auður Bergrún Snorradóttir, GM, endaði jöfn í 59. sæti mótsins á tuttugu höggum yfir pari. Hún lék hringi sína á 76-82-78. Auður lék par 3 holur vallarins einkar vel, var tvo yfir pari á þeim holum í mótinu og fékk þrjá fugla.