Eva í þriðja sæti í Hvaleyrarbikarnum
Dagur Ebenezersson • 2. júní 2025

Eva í þriðja sæti í Hvaleyrarbikarnum
Landsliðskylfingurinn Eva Kristinsdóttir endaði í 3. sæti í Hvaleyrarbikarnum sem fram fór um helgina í Keili en hún var ein af 16 fulltrúum GM í mótinu. Leiknar voru 54 holur og voru erfiðar aðstæður á Hvaleyrarvelli en enginn kylfingur lék mótið undir pari.
Eva lék hringina á +15 (78-77-73) og var efst GM-inga í mótinu. Berglind Erla Baldursdóttir var jöfn í 5. sæti á +21 (79-79-76). Sara Kristinsdóttir var í 7. sæti á +23 (79-80-77) og Auður Bergrún Snorradóttir í 8. sæti á +25 (83-79-76).
Í karlaflokki var Ingi Þór Ólafson bestur GM-inga á +16 (75-75-79) en hann endaði jafn í 32. sæti.