Eva í þriðja sæti í Reykjanesmóti GS og GSG

Dagur Ebenezersson • 18. maí 2026

Eva í þriðja sæti í Reykjanesmóti GS og GSG

Fyrsta stigamót ársins á GSÍ mótaröðinni fór fram núna um helgina. Töluverður vindur var fyrstu tvo dagana og þurfti að fresta öðrum hring sem fram átti að fara í Sandgerði og voru því einungis leiknar 36 holur.


Eva Kristinsdóttir endaði í 3. sæti í mótinu á eftir Perlu og Fjólu en hún lék á 79 og 73 höggum eða 10 höggum yfir pari, höggi á eftir Fjólu og 6 höggum á eftir Perlu.


Lárus Garðar Long (77-70) og Kristófer Karl Karlsson (75-72) voru bestir GM karlamegin en þeir léku á 5 höggum yfir pari samtals, 8 höggum á eftir sigurvegara mótsins, Aroni Snæ.


Næsta mót á mótaröðinni er Korpubikarinn eftir tvær vikur en þar fer einnig fram Íslandsmótið í golfi 6.-9. ágúst.