Eva Íslandsmeistari í golfhermum 2026

Eva Íslandsmeistari í golfhermum 2026
Úrslitakeppni Landsmótsins í golfhermum fór fram laugardaginn 2. maí í Íþróttamiðstöð GKG og reyndist gífurlega spennandi viðburður. Efstu tólf karlarnir og efstu tólf konurnar úr undankeppnum mótsins léku til úrslita, en 268 kylfingar hófu keppni í mótinu.
Leikinn var 36 holu höggleikur á Korpúlfsstöðum, en þar verður Íslandsmótið í golfi 2026 haldið í ágúst en sýnt var frá síðustu 18 holunum í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Facebook síðu GSÍ.
Eva sigraði atvinnumanninn Ragnhildi Kristinsdóttur í bráðabana með fugl á fyrstu holu. Einnig þurfti bráðabana til að skera úr um sigurvegara í karlaflokki þar sem Axel Bóasson endaði sem sigurvegari.
Sigurvegarar mótsins fengu að launum 130.000 kr. og nafn sitt á farandbikar Landsmótsins.
Þetta er þriðja árið í röð sem Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með sigurvegara í mótinu en árið 2024 sigraði Sara Kristinsdóttir eldri systir Evu og 2025 sigraði Andri Már Guðmundsson í karlaflokki.
Til hamingju Eva!

