Eva og Kristján Karl kepptu á EM landsliða

Eva og Kristján Karl kepptu á EM landsliða
Evrópumótum landsliða lauk laugardaginn 11. júlí, en Eva Kristinsdóttir keppti fyrir kvennalið Íslands og Kristján Karl Guðjónsson fyrir piltalið Íslands. Sex fulltrúar keppa í karla, kvenna, pilta og stúlknaliðum fyrir hönd Íslands á EM. Fyrirkomulag mótsins er tveggja daga höggleikur og þriggja daga holukeppni. Leikinn er 36 holu höggleikur fyrstu tvo keppnisdagana og fimm af sex skorunum liðsins telja hvorn dag. Að loknum höggleiknum er holukeppni þar sem leikið er um sæti í mótinu.
Kvennaliðið keppti á PGA National Slieve Russell vellinum í Ballyconnell á Írlandi. Eftir höggleikinn var Ísland í 15. sæti af 22 liðum og lék Eva best íslensku kvennana á +6 (76-74) og jöfn í 49. sæti í höggleiknum af einstaklingum.
Í fyrsta leik vann Eva sinn leik við Minouche Rooijmans örugglega 6/5 en leikurinn endaði í 3-2 tapi. Því næst var leikur á móti Tékklandi þar sem Eva sigraði mótherja sinn Tereza Zavrelová í bráðabana á 19. holu en 3-2 tap íslenska liðsins niðurstaðan. Lokaleikurinn var við Belga en Eva tapaði sínum leik á móti Elsie Verhoeven 3/1 í 3-2 tapi íslenska liðsins. Lokaniðurstaða Íslenska liðsins í mótinu var því 16. sæti.

Piltalið Íslands lék á Montecastillo golfvellinum á Spáni og voru þeir í 15. sæti af 16. liðum eftir höggleikinn. Kristján var ekki á sínum besta slætti en kom inn á +12 79-77. Í holukeppninni unnu lið Íslands fyrsta leikinn við Sviss 3,5 - 1,5 og var Kristján Karl með Birni Breka í fjórmenning og unnu þeir sinn leik 2/1. Í öðrum leik á móti Svíjum vann lið Íslands 3 - 2 en Kristján og Björn töpuðu sínum leik 4/3.
Lið Íslands mætti Noregi í lokaleiknum leik þar sem Norðmenn höfðu betur 3,5 - 1,5. Kristján Karl tapaði sínum leik á 18. holu á móti Marius Kvande. Lokaniðurstaða Íslands í mótinu var því 10. sæti og leika því aftur í efstu deild að ári.

