Eva sigraði á GJG Juniors International
Dagur Ebenezersson • 6. apríl 2026

Eva sigraði á GJG Juniors International
Landsliðskylfingurinn Eva Kristinsdóttir sigraði eftir 3 frábæra hringi á GJG Juniors invitational á Global Junior mótaröðinni. Mótið var leikið á PGA Aroeira 1 sem er nálægt Lissabon í Portúgal. Eva lék hringina á 70 74 76 eða samtals á 4 höggum yfir pari og sigraði með 4 högga mun yfir henni frönsku Céleste Bobo Lloret.
Kristján Karl Guðjónsson, einnig landsliðskylfingur úr GM, lék virkilega vel í mótinu og var í toppbaráttunni þar til á síðustu holunni en þurfti á endanum að sætta sig við 4. sætið. Hann lék á 73 71 78 eða 6 höggum yfir pari samtals.

Virklilega flott mót hjá okkar fremstu afrekskylfingum og svo sannarlega spennandi golfsumar framundan hjá þeim.
Hér má finna lokastöðuna í mótinu
