Greiðsla félagsgjalda árið 2020 fer fram í gegnum Nóra eins og árið 2019. Kerfið hefur verið notað af íþróttafélögum um allt land með góðum árangri og gekk fyrsta ár GM vel. Félagsmenn skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á slóðinni golfmos.felog.is
og ganga frá greiðslu félagsgjalds fyrir árið 2020. Bæði er hægt að greiða með greiðslukorti eða fá kröfur í heimabanka. Öll greiðsla félagsgjalda er rafræn og ganga félagsmenn sjálfir frá greiðslu í gegnum vefinn.
Greiðsluleiðir
- Millifærsla á reikning 0116-26-0329, kt: 650581-0329. Senda kvittun á golfmos@golfmos.is
- Allt að 9 skipti á greiðslukort
- Allt að 6 kröfur í heimabanka ( Kröfurnar birtast með nafni Greiðslumiðlunar í heimabanka
)
Hafi engar ráðstafanir verið gerðar af hálfu félagsmanna fyrir 23. desember næstkomandi munu félagsgjöld verða innheimt með 4 greiðsluseðlum. Þurfi að gera breytingar á greiðslufyrirkomulagi eftir þann tíma þarf að hafa samband við skrifstofu og er þá innheimt breytingargjald kr. 990.
Hérna fyrir neðan má finna myndband sem fer yfir ferlið, skref fyrir skref.
Vakni einhverjar spurningar varðandi félagsgjöld eða greiðslu þeirra er félagsmönnum bent á að hafa samband við skrifstofu GM í síma 566-6999. Skrifstofan er opin alla virka daga á milli klukkan 10:00 og 16:00.
|