Fjórir Golfkennarar GM útskrifast úr PGA skólanum

Dagur Ebenezersson • 18. júní 2025

Fjórir Golfkennarar GM útskrifast úr PGA skólanum

Síðastliðin 3 ár hafa fjórir kennarar í GM stundað nám í PGA golfkennaraskólanum. Andri og Katrín Dögg hafa starfað í íþróttastarfi GM síðastliðin ár en Pétur og Gísli hafa sinnt einkakennslu og hópakennslu fyrir klúbbinn. Þetta er í sjötta sinn sem PGA á Íslandi útskrifar PGA golfkennara á Íslandi en félagið hefur alfarið séð um menntun golfkennara á Íslandi frá árinu 2006. Alls útskrifuðust 42 nýir golfkennarar 17. júní og óskum við þeim innilega til hamingju!

Hægt er að bóka golfkennslu (bæði einkatíma og golfnámskeið) á golfmos.is/golfkennsla