Fjórir kylfingar GM kepptu í úrslitum í Landsmóti golfherma

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 3. apríl 2023

Úrslitakeppni í Landsmótinu í golfhermum 2023 fór fram í gær, sunnudaginn 2. apríl. Þetta er í annað sinn sem Landsmótið í fer fram en Golfklúbbur Mosfellsbæjar átti fjóra keppendur alls, tvo í kvennaflokki og tvo í karlaflokki. Leiknar eru tvær undankeppnir í mótinu og í úrslitunum voru 16 bestu kylfingarnir, 8 í karlaflokki og 8 í kvennaflokki. Mótið var leikið á Grafarholtsvelli af bláum og hvítum teigum og var mótið sýnt í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Í kvennaflokki voru kandidatar GM landsliðsstelpurnar Sara Kristinsdóttir og Berglind Erla Baldursdóttir og endaði Sara í 4. sæti á -2 og Berglind í 6. sæti á +6.

Í karlaflokki voru það feðgarnir Ingi Rúnar Gíslason og Aron Skúli Ingason sem kepptu fyrir hönd GM en Ingi Rúnar endaði í 6. sæti á +2 og Aron í 8. sæti á +8.