FRÉTTIR AF HLÍÐAVELLI OG BAKKAKOTI
-1920w.jpg)
Ágætu félagar í Golfklúbbi Mosfellsbæjar.
Nú er sól farin að hækka á lofti og vellirnar okkar að taka vel við sér eftir langan og erfiðan vetur. Það er okkur mikið gleðilefni að bæði Hlíðavöllur og Bakkakot koma vel undan vetri. Það sér aðeins á tveimur flötum í Bakkakoti en þær verða fljótar að koma til í vor. Það er eitthvað um frostlyftingu á brautum en er það okkar von að mest af því gangi til baka.
Starfsmenn klúbbsins hafa unnið hörðum höndum undanfarnar vikur á Hlíðavelli að margvíslegum verkefnum. Búið er að snyrta mikið af trjágróðri og laga til í umhverfi Kletts. Stóra verkefni þessa vors er þó niðursetning á sjálfvirku vökvunarkerfi á holum 10 -18. Það er mikil þörf á því að fá sjálfvirkt vökvunarkerfi á Hlíðavöll og mun það bæta gæði vallarins mikið þar sem sjálfvirk vökvun er talsvert nákvæmari og betri og tekur líka engan tíma frá vallarstarfsmönnum sem geta þá einbeitt sér að öðru viðhaldi á vellinum. Stefnan er sett á að klára að koma á sjálfvirkri vökvun öllum holum vallarins sem allra fyrst.
Einnig hefur farið fram vinna á nýja æfingasvæðinu okkar. Þar er búið að helluleggja rúmlega 100 fermetra og á því svæði verða gervigrasmottur sem munu nýtast okkur vel, sérstaklega að vori og á haustin þegar hvíla þarf grasteiginn okkar.
Það er mikill munur á Hlíðavelli dag frá degi og stefnum við á að opna völlinn á bilinu 4. – 7. maí, það fer þó allt eftir því hvernig viðrar næstu daga. Spáin er góð þannig að við erum mjög bjartsýn á að ná að opna á þessu tímabili. Við gerum svo ráð fyrir því að opna Bakkakot ca. tveimur vikum seinna.
Eins og flestum ætti að vera kunnugt þá hefur GSÍ tekið í notkun nýtt tölvukerfi, Golfbox og vonandi hafa allir kynnt sér það vel. Ef þið kylfingar góðir lendið í vandræðum þá endilega hafa sambandi við skrifstofu klúbbsins og við aðstoðum eftir bestu getu.
Við stefnum að því að hafa vinnudag/hreinsunardag á Hlíðavelli áður en við opnum og munum auglýsa það nánar í vikunni. Er það okkar von að sem flestir sjái sér fært að mæta. Það er nóg af verkefnum og við munum að sjálfsögðu skipuleggja vinnu þannig að öllum reglum vegna Covid-19 sé fylgt.
Við leyfum ykkar svo að fylgjast með stöðu mála hjá okkur og gerum ráð fyrir því að taka ákvörðun um formlegan opnunardag þegar að líður á vikuna.
Annars óskum við ykkur gleðilegs golfsumars og hlökkum til að sjá ykkur!
Starfsfólk GM.