Fréttir af okkar kylfingum í Bandaríkjunum

Dagur Ebenezersson • 12. nóvember 2026

Fréttir af okkar kylfingum í Bandaríkjunum

Eva Kristinsdóttir – University of Iowa
Eva átti frábært fyrsta haust og varð þrisvar meðal tíu efstu 10 í einstaklingskeppninni: Hún var  jöfn í 5. sæti á Badger Invitational, jöfn í 8. sæti á Diane Thomason Invitational og í 7. sæti á Illini Women’s Invitational á Medinah. Þar lék hún á 66-69-73 höggum, samtals átta undir pari, setti skólamet yfir 36 og 54 holur og jafnaði 18 holu metið. Hún var þrisvar valin nýliði vikunnar í Big Ten-deildinni og fyrst kvenna í sögu Iowa til að hljóta þrjár vikulegar viðurkenningar deildarinnar á sama tímabili. Vægast sagt stórkostleg byrjun á háskólaferlinum hjá Evu.

Heiða Rakel Rafnsdóttir – Grand Valley State University
Heiða lék í fimm mótum í haust. Besti árangurinn var 12. sæti á UIndy Fall Invitational og hún varð einnig jöfn í 15. sæti á Gilda’s Club Laker Fall Invite. Fyrr á árinu vann hún sitt fyrsta háskólamót á UMSL Spring Invitational-mótinu sem fór fram á Norwood Hills CC.

Auður Bergrún Snorradóttir – Florida International University
Auður glímdi við meiðsli fyrripart hausttímabils en náði lokamótinu á önninni. Hún byrjaði af krafti og varð í 9. sæti af 91 keppanda á Pat Bradley Invitational. Hún lék á 75-74-71 höggi eða samtals fjórum höggum yfir pari og náði besta árangri allra kylfinga liðs síns á mótinu.

Birna Rut Snorradóttir – Western Illinois University
Birna lék í fjórum mótum í haust á sinni fyrstu önn í háskólagolfinu. Hún varð meðal annars jöfn í 50. sæti á Butler Fall Invitational og lauk haustinu jöfn í 10. sæti af 14 keppendum á Western Cup, þar sem Western Illinois vann liðakeppnina.

Berglind Erla Baldursdóttir – Keiser University
Berglind lék í tveimur mótum í haust. Fyrra mótið fór fram á PGA National, en bestum árangri náði hún á Flagler Fall Slam þar sem hún endaði í 11. sæti af 81 keppanda. Þar lék hún báða hringina á 75 höggum, samtals sex yfir pari. Hún fékk einnig sína fyrstu holu í höggi. Draumahöggið kom með pitching wedge af 100 metra færi á 7. holu á Okeeheelee golfvellinum sem er völlurinn þar sem Brooks Koepka lærði golf sem ungur drengur.

Sara Kristinsdóttir – Catawba College
Sara lék í fjórum mótum og hennar besta mót var 8. sæti á Glassy Mountain Autumn Classic. Hún var einnig efst Catawba-kylfinga á LeeAnn Noble Memorial, jöfn í 22. sæti eftir lokahring upp á 71 högg. Í sumar hlaut hún WGCA All-American Scholar-viðurkenninguna fyrir námsárangur annað árið í röð.

Ásdís Eva Bjarnadóttir – Newman University
Ásdís Eva lék í öllum fjórum mótum Newman í haust og náði best 29. sæti á MSSU Fall Invitational. Hún lauk haustinu með besta árangri Newman-kylfinga á Grace Shin Invitational.

Gabríella Neema Stefánsdóttir – University of Arkansas at Monticello
Gabríella steig sín fyrstu skref í háskólagolfinu í haust og lék á NSU Women’s Classic í september, þar sem hún endaði í 66. Sæti. Seinni part annar glímdi hún við veikindi og missti úr golfinu í ákveðinn tíma en er að ná sér á strik á ný. 

María Eir Guðjónsdóttir – Jacksonville University
María Eir er á fjórða ári við Jacksonville University í Flórída og er áfram í golfliði skólans. Hún hefur glímt við veikindi sem hafa haldið henni frá keppni en hún æfir með liðinu.

Við erum stolt af þessum öfluga hópi og hlökkum til að fylgjast með framhaldinu!