FROST Á VALLARSVÆÐUM HLÍÐAVALLAR

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 23. október 2019

Frá og með hádegi í dag er leikinn vetrarvöllur á Hlíðavelli. Þá er slegið af vetrarteigum á vetrarflatir og sýnir meðfylgjandi mynd vetrarvöllinn 2019. Skorkort vetrarvallarins eru komin í prentun og verða aðgengileg bráðlega.

Bakkakot hefur lokað í ár.

Öll umferð golfbíla á vallarsvæðum GM er óheimil þangað til annað er gefið út frá vallarstjóra.

Góða skemmtun!