GM merktur fatnaður - Mátunarvika
Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 14. mars 2022

Dagana 21. - 24. mars verður boðið upp á mátunarviku á GM merktum fatnaði fyrir sumarið 2022. Í meðfylgjandi auglýsingu má sjá upplýsingar um þær flíkur sem eru í boði ásamt verðum. Fatnaðurinn verður á tilboðsverði þessa daga og því um að gera að nýta sér það og græja sig fyrir sumarið.
Hægt er að koma og máta milli klukkan 8:30 - 16:00 dagana 21. - 24. mars. Einnig verður hægt að máta milli klukkan 20:00 og 21:00 á púttkvöldum karla og kvenna, miðvikudaginn 23. mars og fimmtudaginn 24. mars.
Vonumst til þess að sjá sem flesta í GM merktum fatnaði í sumar!