Golfklúbbur Mosfellsbæjar - Íslandsmeistari golfklúbba

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 3. ágúst 2023

Íslandsmót Golfklúbba fór fram um síðustu helgi og þar áttum við í GM að sjálfsögðu okkar fulltrúa.

Kvennasveitin okkar spilaði í Leirunni hjá Golfklúbbi Suðurnesja og karlasveitin á Jaðri hjá Golfklúbbi Akureyrar.

Bæði liðin stóðu sig stórkostlega og urðu Íslandsmeistarar, sannarlega frábær árangur hjá okkar fólki og erum við afar stolt af þeim.

Srákarnir okkar léku til úrslita við heimamenn í GA og þar réðust úrslitin á fyrstu holu í bráðabana.

Stelpurnar léku til úrslita við Golfklúbb Reykjavíkur og sigrðuðu þann leik.

Óskum við okkar fólki kærlega til hamingju með þennan stórkostlega árangur.