Golfsixes haldið í annað sinn í GM

Golfsixes var haldið 28. febrúar í annað sinn í GM. Mótið er ætlað þeim kylfingum sem eru að taka sín fyrstu skref í keppnisgolfi og er það á vegum R&A.
Alls voru 42 kylfingar sem tóku þátt sem er töluverð fjölgun frá því í fyrra. Kylfingar léku í 6 mismunandi liðum í 2 deildum (stelpu og stráka) og fengu derhúfu í lit liðs síns. Í hverju liði voru 6-8 leikmenn léku þeir um flögg í texas-scramble leikfyrirkomulagi líkt og í Íslandsmóti golfklúbba 12 ára og yngri. Kylfingar fengu brúsa, íþróttatösku og pokamerkis merkt Golfsixes.
Frábærir taktar sáust í mótinu og voru meðal annars 2 holur í höggi og fjöldi vippa sem fóru í holu!
Fimm afrekskylfingar hjálpuðu til við viðburðinn og þökkum við þeim kærlega fyrir aðstoðina.
Að keppni lokinni var Kahoot spurningakeppni, verðlaunaafhending og pizzuveisla.

Sigurliðin í Golfsixes 2026 voru græna liðið og svarta liðið





