Guðni Valur í þjálfarateymi GM

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 20. september 2023

Guðni Valur Guðnason kemur inn í unglinga og afreksstarfið okkar sem styrktarþjálfari.

Guðna þarf vart að kynna en hann er Ólympíufari, margfaldur Íslandsmeistari í kringlukasti auk þess að hafa keppt á fjölda stórmóta í kringlukasti. Guðni er einnig frábær kylfingur og hefur verið meðlimur hjá okkur í fjölda ára og er forgjöfin hans í kringum núllið.

Næsta vor klárar hann svo mastersnámið sitt í íþróttafræðum frá Háskólanum í Reykjavík.

Það er okkur mikill fengur að fá Guðna inn í starfið okkar þar sem þetta er sá hluti golfsins sem við þurfum að bæta verulega í þegar kemur að íþrótta- og afreksstarfinu og hjálpa okkar kylfingum til þess að ná enn lengra í golfíþróttinni.