HAUKUR MÁR PGA GOLFKENNARI SEMUR VIÐ GM
-1920w.jpg)
Haukur Már er PGA menntaður golfkennari sem býr yfir mikilli reynslu og hefur undanfarin ár starfað sem golfkennari hjá GKG með virkilega góðum og eftirtektarverðum árangri. Er það mikill fengur fyrir okkur að fá Hauk til starfa og erum við þess fullviss um að okkar kylfingar eigi eftir að nýta sér hans þjónustu og þekkingu vel og bæta sinn golfleik til muna.
Haukur Már mun í byrjun einbeita sér að einkakennslu fyrir okkar félaga sem og hópakennslu.
Með tilkomu Hauks sjáum við fram á það að geta aukið verulega við þá þjónustu sem við bjóðum upp í golfkennslu og náð enn frekar til okkar félaga. Þegar sól tekur að hækka á lofti og samkomubanni aflétt mun golfkennslan hjá okkur fara á fullt og það verða fjölmörg námskeið í boði hjá GM í sumar sem og að sjálfsögðu einkatímar.
Bjóðum við Hauk Má velkomin til starfa hjá GM og hlökkum við mikið til samstarfsins og væntum mikils af honum í starfi sínu fyrir GM.