Heiða Rakel önnur í Íslandsmótinu í holukeppni

Dagur Ebenezersson • 22. júní 2026

Heiða Rakel önnur í Íslandsmótinu í holukeppni

Íslandsmótið í holukeppni fór fram um helgina 19. - 21. júní og léku konurnar í GO og karlarnir í GS. Leikinn var 36 holu höggleikur á föstudaginn og komust aðeins 16 efstu úr höggleiknum í holukeppnina sem var leikin sem útsláttarkeppni.

Eva Kristinsdóttir var best GM kvenna eftir höggleikinn en hún lék á 1 höggi yfir pari (68-75) og var næst efst. Auður Bergrún Snorradóttir endaði í 10. sæti á +12 (80-74). Heiða Rakel Rafnsdóttir byrjaði mjög illa á fyrri hring en kom sér inn í holukeppnina eftir góða baráttu og var í 15. sæti á +17 (80-79). Þetta þýddi að Eva og Heiða mættust í fyrsta leik og hafði Heiða Rakel betur 1/0. Auður Bergrún vann Evu Fanney úr GKG í fyrsta leik 2/1. Heiða mætti því Auði í 8 manna úrslitum og hafði betur með sannfærandi hætti eða 5/4 sigur.


Í undanúrslitum lék Heiða á móti Fjólu Margréti úr GS og sigraði 2/0 eftir spennandi leik sem endaði með glæsilegum fugli á 18 til að tryggja henni í úrslitin. Leikurinn um Íslandsmeistaratitilinn var á móti atvinnukylfingnum Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur og reyndist hann erfiður fyrir Heiðu sem tapaði og sætti sig við annað sætið. Frábær árangur hjá Heiðu og er þetta hennar besti árangur á stigamótaröð GSÍ.

Í karlaflokki voru 3 kylfingar sem komust í holukeppnina eftir höggleikinn. Andri Már Guðmundsson lék á 3 höggum yfir pari í endaði í 12. sæti (70-75). Kristján Karl Guðjónsson og Kristófer Karl Karlsson enduðu báðir á 4 höggum yfir pari (báðir 71-74) og fengu báðir frábæra fugla á lokaholunni til að sleppa við 7 manna bráðabana um sæti.

Í fyrsta leik lék Andri Már á móti Svanberg Adda úr Keili og tapaði 2/0 eftir að Svanberg endaði á erni á lokaholunni. Kristófer Karl lék á móti Gunnari Þór úr GKG og fóru þeir 7 holur í bráðabana sem endaði á erni hjá Gunnari á móti fugli hjá Kristófer og var hann því úr leik.

Kristján Karl sigraði fyrsta leik sinn á móti Hákoni Erni í GR 2/1 eftir flotta spilamennsku. Í 8 manna úrslitum lék hann á móti Veigari úr GA og tapaði 3/2 eftir hörkuleik þar sem báðir kylfingar léku undir pari vallar.