Heiða Rakel sigrar í sínu fyrsta háskólamóti
Dagur Ebenezersson • 14. apríl 2026

Heiða Rakel sigrar í sínu fyrsta háskólamóti
Heiða Rakel Rafnsdóttir sem leikur fyrir háskólann Grand Valley State University gerði sér lítið fyrir og sigraði á UMSL Spring Invitational. Mótið fór fram 12. - 13. apríl og voru leiknir 3 keppnishringir í höggleik á Norwood Country Club í St. Louis. Alls voru 94 keppendur í mótinu í 17 mismunandi háskólaliðum.
Heiða lék hringina á 68-75-69 eða einu höggi undir pari samtals og sigraði með 1 höggi. Einnig vann lið hennar Grand Valley State University með 7 högga mun eða á 23 höggum yfir pari samtals.
Innilega til hamingju Heiða Rakel!
Lokastöðuna má finna hér.

