Heiða Rakel skrifar undir hjá Grand Valley háskólanum

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 14. nóvember 2024

Heiða Rakel Rafnsdóttir, afrekskylfingur úr GM mun spila fyrir Grand Valley State háskólann. Heiða hefur átt góð síðustu ár í keppnisgolfi á Íslandi og mun næsta haust hefja háskólagöngu þar sem hún mun spila á skólastyrk næstu fjögur árin. Arna Rún Kristjánsdóttir, einnig úr GM lék golf á skólastyrk fyrir skólann með góðum árangri.

Við óskum Heiðu Rakel innilega til hamingju og góðs gengis úti.