Hjalti Kristján bestur GM-inga um helgina

Dagur Ebenezersson • 27. maí 2025

Hjalti Kristján bestur GM-inga um helgina

Síðustu helgi fór fram annað vormótið á mótaröð GSÍ og annað unglingamótið GSÍ og fyrsta Golf14 mót golfsumarsins. Vormótið fór fram í Þorlákshöfn en unglingamótin bæði í Sandgerði.


Í flokki 15-16 ára drengja var Hjalti Kristján bestur GM-inga en hann endaði jafn í 2. sæti á -9 (71-69-67). Í flokki 17-18 ára drengja var Kristján Karl Guðjónsson í 3. sæti á -7 (70-68-71). Í flokki 15-16 ára stúlkna var Sara María Guðmundsdóttir í 6. sæti á +12 (81-76-71). Í flokki 17-18 ára stúlkna var Gabríella Neema Stefánsdóttir jöfn í 8. sæti á +15 (77-74-80) og Birna Rut Snorradóttir í 10. sæti á +17 (72-78-83).


Golf14 er mótaröð 14 ára og yngri og var Eiríka Malaika Stefánsdóttir í 2. sæti í 14 ára og yngri stúlknaflokk í 36 holu mótinu en hún lék á +30 (88-86). Elva Rún Rafnsdóttir lék á +46 (95-96) og endaði í 6. sæti. Ásgeir Páll Baldursson endaði jafn í 8. sæti í drengjaflokki 14 ára og yngri á +9 (75-78). Emil Darri Birgisson var í 10. sæti á +12 (78-78).


Í flokki 12 ára og yngri stúlkna var Edda María Hjaltadóttir í 3. sæti á +18 (53 höggum) og Anna Dís Strange í 7. sæti á +33 (68 höggum).


Í vormótinu sem fór fram í Þorlákshöfn var Kristján Þór Einarsson jafn í 12. sæti á +12 punktum (5 og 5 punktar) og því efstur GM-inga. Í kvennaflokki var Erla Marý Sigurpálsdóttir á -17 punktum (-11 og -6 punktar) og endaði í 4. sæti.


Næstu helgi er Hvaleyrarbikarinn í Keili og við óskum okkar fulltrúum góðs gengis í fyrsta stórmóti ársins.