Hjalti Pálmason í öðru sæti í Íslandsmóti eldri kylfinga

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 17. júlí 2023

Íslandsmót eldri kylfinga 2023 fór fram á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 13.-15. júlí 2023 við töluvert krefjandi aðstæður.

Leikfyrirkomulag var 54 holu höggleikur án forgjafar yfir 3 keppnisdaga.

Hjalti Pálmason, GM, var hársbreidd frá sigri í 50+ flokki en hann lék hringina 3 á 79-77-73 eða 13 höggum yfir pari.

Hann endaði 2 höggum frá Jóni Karlssyni sem endaði á 11 höggum yfir pari.

Hjalti Pálmason er búinn að leika stöðugt golf í sumar og hefur tryggt sæti sitt í karlasveit GM sem fer fram 27.-29. júlí á Jaðarsvelli á Akureyri.

Aðrir keppendur úr GM í karlaflokki 50+ voru þeir þeir Sigurður Óli Sumarliðason sem endaði á 49 höggum yfir pari í 37. sæti og Jón Þorsteinn Hjartarson sem endaði í 39. sæti á 50 höggum yfir pari. Í kvennaflokki 50+ var Írunn Ketilsdóttir ein keppenda úr GM en hún lauk leik á 73 höggum yfir pari í 14. sæti.