Hönnunarvinna á nýju yfirbyggðu æfingasvæði á Hlíðavelli hafin

Vinna við hönnun á nýju yfirbyggðu æfingasvæði á Hlíðavelli komin vel á veg!

Líkt og kom fram á síðasta aðalfundi Golfklúbbs Mosfellsbæjar þá var ákveðið að fara af stað með hönnun á nýja yfirbyggðu æfingasvæði á Hlíðavelli. Í viðhorfskönnunum til félagsmanna sem við höfum sent á haustmánuðum undanfarin ár þá er þetta það sem hvað flestir vilja sjá á Hlíðavelli, yfirbyggt æfingasvæði.
Stjórn GM ákvað því að fara í hönnun á slíku húsnæði þar sem horft væri til framtíðar og að húsið muni uppfylla allar þarfir okkar meðlima til framtíðar. Þeir sem hafa borið hitann og þungan af þessari hönnun eru þeir Óli Rúnar Eyjólfsson og Einar Ingólfsson ásamt fleiri snillingum. Þeir eru báðir golfarar og hafa komið að hönnun æfingasvæða í Danmörku og hér á Íslandi.
Nú eru fyrstu drög komin og þau líta glæsilega út. Horft var til þess að þetta húsnæði nýtist allt árið um kring. VIð gerum því ráð fyrir því að yfir sumartímann séu tæplega 50 Trackman Range básar ásamt fjórum Trackman golfhermum sem eru þá ætlaðir í afreksstarfið okkar sem og barna og unglingastarfið.
Sjá mynd hér fyrir ofan sem er af jarðhæðinni.
Á jarðhæðinni er einnig gert ráð fyrir tæplega 500 fermetra aðstöðu til þess að pútta og vippa. Verður það svæði með tvöfaldri lofthæð og mun því nýtast vel til æfinga.
Hér fyrir neðan er mynd af efri hæð hússins.

Yfir vetrartímann þá breytist neðri hæðin í inni Trackman aðstöðu ásamt því sem það verður herbergi á efri hæðinni einnig með Trackman golfhermum. Neðri hæðin sem og þetta rými á efri hæðinni eru með hurðum sem verða þá alveg lokaðar yfir vetrarmánuðina og þá þá verða tæplega 20 Trackman golfhermar. Einnig verða áfram rétt tæplega 20 Trackman range rými á efri hæðinni þar sem hægt er að slá út á æfingasvæðið ef veður leyfir.
Við erum gríðarlega ánægð með þessa hönnun og erum þess fullviss að svona æfingahúsnæði mun bæta alla okkar aðstöðu svo um munar.
Hafa ber í huga að þetta er einungis fyrsta skrefið í þessu ferli hjá okkur og erum við svo sannarlega að horfa til framtíðar í þessum efnum. Þegar hönnun er lokið þá fer þetta í skipulagsferli og í kjölfarið á því verður farið í það að leyta leiða til þess að fjármagna þetta húsnæði.
Við viljum svo sannarlega vanda okkur vel í þessu ferli og tryggja að þarna muni rísa glæsilegt æfingahúsnæði sem muni nýtast okkur um komandi framtíð.

