Ingi og Pamela best GM á Íslandsmótinu

Golfklúbbur Mosfellsbæjar • 14. ágúst 2023

Íslandsmótinu í golfi lauk í gær á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og Logi Sigurðsson, GS eru Íslandsmeistarar 2023 og er þetta er í fyrsta sinn sem þau fagna þessum titli.

Golfklúbbur Mosfellsbæjar átti 24 keppendur, 12 í hvorum flokk og voru það Ingi Þór og Pamela Ósk sem léku best okkar kylfinga.

Ingi Þór Ólafson lék hringina fjóra á -4 og endaði í 4. sæti og er það hans besti árangur í Íslandsmótinu í höggleik.


Ingi Þór Ólafson

Pamela Ósk Hjaltadóttir lék hringina fjóra á +13 og endaði í 9. sæti og er það einnig hennar besti árangur í Íslandsmótinu í höggleik.


Pamela Ósk Hjaltadóttir

Úrslit mótsins urðu eftirfarandi og má sjá keppendur GM sem náðu niðurskurði feitletraða.

Karlaflokkur

1. Logi Sigurðsson, GS 273 högg (69-67-71-66) (-11)
2. Hlynur Geir Hjartarson, GOS 274 högg (70-65-68-71) (-10)
3. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG (69-65-76-67) (-7)
4. Ingi Þór Ólafson (75-70-65-70) (-4)
18. Sverrir Haraldsson (75-72-70-72) (+5)
22. Kristófer Karl Karlsson (73-71-74-72) (+6)
23. Kristján Þór Einarsson (74-69-75-74) (+8)
27. Björn Óskar Guðjónsson (71-75-76-74) (+12)
59. Andri Már Guðmundsson (78-77-80-75) (+26)
61. Arnór Daði Rafnsson (80-75-77-80) (+28)

Kvennaflokkur

1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 283 högg (70-70-71-71) (-1)
2. - 4. Andrea Björg Bergsdóttir, GKG 285 högg (74-71-72-68) (+1)
2. - 4. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR 285 högg (76-69-69-71) (+1)
2. - 4. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG 285 högg (70-76-67-72) (+1)
9. Pamela Ósk Hjaltadóttir (77-77-68-75) (+13)
11. Berglind Erla Baldursdóttir (76-70-78-75) (+15)
15. Eva Kristinsdóttir (76-84-78-74) (+28)
16. Heiða Rakel Rafnsdóttir (83-76-79-76) (+30)
17. Katrín Sól Davíðsdóttir (80-75-79-81) (+31)
21. Sara Kristinsdóttir (86-79-78-77) (+36)
28. Kristín Sól Guðmundsdóttir (84-79-76-88) (+43)