Karl Ómar ráðinn til GM

Karl Ómar ráðinn til GM
Karl Ómar Karlsson hefur verinn ráðinn inn í barna- og unglingastarf Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Karl Ómar er menntaður PGA golfkennari og útskrifaðist úr HGTU golfkennaranámi í Svíþjóð árið 2003. Hann hefur síðan aukið við þekkingu sína með fjölbreyttum námskeiðum á vegum norsku og sænsku golfkennarasamtakanna. Þá hefur hann komið að fjölmörgum verkefnum tengdum þjálfun, kennslu og liðsstjórn fyrir Golfsamband Íslands.
Kalli er lærður grunn- og framhaldskólakennari og hefur mikla reynslu sem grunnskólakennari.
Karl kemur inn í kennarateymi íþróttastarfsins með Degi, Andra og Katrínu og mun hafa yfirumsjón með starfi tengt iðkendum sem eru 14 ára og yngri.
Mikil fjölgun hefur verið í æfingahópum beggja kynja í yngstu aldursflokkum og eru nú rúmlega 100 iðkendur undir 14 ára aldri í GM.
Reynsla Kalla í golfbransanum er löng en hann hefur séð um mikla uppbyggingu og starfað sem íþróttastjóri og þjálfari í íþróttastarfi Golfklúbbsins Leynis 1996-2000 og 2005-2014, Golfklúbbsins Keilis 2015-2024 og Golfklúbbi Reykjavíkur (2024-2025).
Á árunum 2000-2005 starfaði Kalli í Noregi hjá tveimur golfklúbbum.
Við bjóðum Kalla velkominn í okkar flotta starf og erum spennt að bjóða upp á enn betri þjónustu fyrir okkar iðkendur og félagsmenn.
