Kristján Karl er stigameistari

Kristján Karl er stigameistari unglinga

Síðasta unglingamótið fór fram um helgina á Korpúlfsstöðum og voru stigameistarar í hverjum flokki krýndir í kjölfarið.
Kristján Karl Guðjónsson endaði jafn í 4. sætið eftir hringi upp á 71-75-76 og endaði sem stigameistari í flokki 17-18 ára pilta. Af 7 leiknum mótum á unglingamótaröðinni í sumar sigraði hann á 3 mótum, var þrisvar í 2. sæti og einu sinni í 4. sæti. Einnig lék hann á báðum Íslandsmótunum í fullorðinsflokki og endaði í 3. sæti í Íslandsmótinu í höggleik og jafn í 5. sæti í Íslandsmótinu í holukeppni. Vægast sagt stórkostlegt golfsumar hjá Kristjáni Karli sem opnar margar dyr fyrir næsta sumar og næstu ár.
Í sumar tókst honum með fyrsta sigrinum á unglingamótaröðinni að komast inn á heimslista áhugamanna og síðan þá er hann búinn að koma sér upp í 331. sæti listans og er nú næst efstur Íslendinga á eftir Gunnlaugi Árna Sveinssyni.
Í flokki 17-18 ára drengja var Grétar Logi Gunnarsson Bender einnig jafn í 4. sæti eftir hringi upp á 73-74-75. Hann endaði í 8. sæti stigalistans eftir flott golfsumar þar sem hann lék í 6 mótum og var hans lakasta mót jafn í 9. sæti sem sýnir góðan stöðugleika.
Sara María Guðmundsdóttir endaði í 5. sæti í flokki 15-16 ára stúlkna eftir hringi upp á 79-88-86 en hún endaði í 2. sæti stigalistans eftir flott sumar þar sem hún sigraði tvisvar, var þrisvar í 2. sæti og svo í 5. sæti í lokamótinu.
Við óskum okkar kylfingum til hamingju með árangurinn!
